Duroferon (Lyfjaver)
Blóðskortslyf
Lausasölulyf
Verðflokkur 0: Lyfið er ekki niðurgreitt og fellur ekki inn í greiðsluþrepakerfiðVirkt innihaldsefni: Járn (II)Skráð 8. febrúar 1979
Járn er snefilefni og nauðsynlegt líkamanum. Járn er í blóðinu í próteinsambandi sem kallast hemóglóbín, og það er líka að finna í öllum rauðum blóðkornum. Hemóglóbín gegnir því hlutverki að flytja súrefni til vefja líkamans og koldíoxíð frá frumum líkamans. Duroferon Duretter er notað við járnskorti og blóðleysi auk þess að vera notað sem fyrirbyggjandi gegn járnskorti hjá þunguðum konum og blóðgjöfum.
Notkun á lyfjum
LyfjaformForðatöflur til inntöku.
Venjulegar skammtastærðirFullorðnir og börn eldri en 12 ára: 100-200 mg á dag. Forðatöflurnar gleypist heilar með vatnsglasi. Má hvorki brjóta þær né tyggja. Má ekki taka þær inn útafliggjandi.
Hversu langur tími uns verkun kemur framMisjafnt eftir sjúklingum.
Verkunartími12-24 klst.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekiðEngin.
GeymslaGeymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymistTaktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.
Hvernig á að hætta töku lyfsinsHætta má töku lyfsins þegar ekki er lengur þörf fyrir það.
Ef tekinn er of stór skammturLyf sem innihalda járn geta valdið eitrunum í fólki. Einkenni þess geta verið magaverkir, uppköst, niðurgangur og meðvitundartruflanir. Járnlyf eru mjög hættuleg börnum. Ef grunur leikur á eitrun skal hafa samband við lækni tafarlaust.
LangtímanotkunVið járnskorti er lyfið notað í nokkrar vikur, eða þar til járnbirgðir líkamans hafa verið endurnýjaðar og síðan í allt að 3 mánuði eftir það.
Aukaverkanir
Eins og almennt gildir um lausasölulyf eru aukaverkanir sjaldgæfar þegar farið er eftir reglum um notkun og venjulegar skammtastærðir eru notaðar.
Algengar aukaverkanir (>1%):
- Niðurgangur, hægðatregða, svartar hægðirLeitið til læknis
- Ógleði, magaverkirLeitið til læknis
Sjaldgæfar aukaverkanir (<1%):
- Bólgur og verkir í vélindaLeitið til læknis
- Útbrot á húðLeitið til læknis
Nánari upplýsingar
Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:
- grunur leiki á um þungun
- þú sért með blóðsjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú takir einhver önnur lyf
- það séu þrengsli í vélinda eða fyrirstaða í meltingarvegi
- þú sért með meltingarfærasjúkdóm
- þú fáir endurteknar blóðgjafir
MeðgangaÞungaðar konur mega nota lyfið.
BrjóstagjöfKonur með barn á brjósti mega nota lyfið.
BörnLyfið er ekki ætlað börnum yngri en 12 ára.
Eldra fólkVenjulegar skammtastærðir.
AksturLyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.
ÁfengiÍ litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.
ÍþróttirLeyft við æfingar og í keppni.
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem finna má á heimsíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.








