Dutasteride Medical Valley

Þvagfæralyf | Verðflokkur: G | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Dútasteríð

Markaðsleyfishafi: Medical Valley | Skráð: 1. september, 2017

Dutasteride er gefið karlmönnum með góðkynja stækkun á blöðruhálskirtli og þvagtregðu vegna hennar. Lyfið er notað til að draga úr áhættu á bráðri þvagteppu og þörf fyrir skurðaðgerð hjá fyrrnefndum karlmönnum. Stækkun blöðruhálskirtils er háð díhýdrótestósteróni, sem er virkara form karlhormónsins testósteróns. Dútasteríð hindrar að testósterón breytist í díhýdrótestósterón í líkamanum og vinnur þannig gegn vexti kirtilsins. Áhrif lyfsins á hárvöxt hafa ekki verið rannsökuð en hins vegar eru líkur til þess að lyfið minnki hártap og auki hárvöxt hjá karlmönnum með hármissi á höfði. Lyfið er ekki ætlað konum.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Hylki til inntöku.

Venjulegar skammtastærðir:
0,5 mg einu sinni á dag. Hylkin gleypist heil. Má ekki tyggja þau.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Um 1-6 mánuðir.

Verkunartími:
24 klst.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef stórir skammtar eru teknir eða ef vart verður við óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.

Langtímanotkun:
Fylgjast þarf reglulega með sjúklingi meðan á meðferð stendur til að meta áhrif lyfsins og hugsanlegar aukaverkanir.


Aukaverkanir

Flestar aukaverkanir lyfsins eru vægar eða miðlungi slæmar og koma fyrir í æxlunarfærum. Tíðni aukaverkana lækkar með tímanum.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Breytingar á kynhvöt          
Brjóstastækkun og/eða eymsli hjá karlmönnum          
Truflun á sáðláti, getuleysi          
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar      

Milliverkanir

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú sért með skerta lifrarstarfsemi

Meðganga:
Lyfið er ekki ætlað konum.

Brjóstagjöf:
Lyfið er ekki ætlað konum.

Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum.

Eldra fólk:
Venjulegar skammtastærðir.

Akstur:
Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.

Áfengi:
Æskilegt er að halda áfengisneyslu í lágmarki meðan lyfið er tekið.

Íþróttir:
Leyft við keppni og æfingar


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.