Edoxaban WH
Lyfseðilsskylt
Edoxaban WH inniheldur virka efnið edoxaban og tilheyrir flokki lyfja sem nefnast segavarnarlyf. Lyfið stuðlar að því að koma í veg fyrir blóðtappamyndun með því að hindra virkni þáttar Xa, sem er mikilvægur þáttur við blóðstorknun. Edoxaban WH er notað hjá fullorðnum til að koma í veg fyrir myndun blóðtappa í heila (slags) og öðrum æðum líkamans hjá þeim sem hafa ákveðna tegund af óreglulegum hjartslætti sem nefnist „gáttatif sem ekki tengist hjartalokusjúkdómum“ og hafa að minnsta kosti einn áhættuþátt auk þess. Lyfið er líka notað til meðferðar við blóðtöppum í bláæðum í fótleggjum (segamyndun í djúplægum bláæðum) og í æðum í lungum (lungnasegarek), og til að hindra endurkomu blóðtappa í æðum í fótleggjum og/eða lungum.
| A-hlið | B-hlið | |
|---|---|---|
| Litur | Bleikur | Bleikur |
| Áletrun | 7X | I |
| Gerð | Filmuhúðuð tafla |
|---|---|
| Lögun | Hringlaga |
| Deilistrik | Nei |
| Þvermál | 8 mm |
| Grunnlögun | Kúpt |
| Styrkur | 30 mg |
Notkun á lyfjum
Aukaverkanir
Ef þú færð óstöðvandi blæðingu eða ef þú færð einkenni um óhóflega blæðingu (óvenjulegt máttleysi, þreytu, fölva, sundl, höfuðverk eða óútskýrðan þrota) hafðu þá samband við lækninn strax.
- BlæðingLeitið til læknis
- Blæðing úr leggöngumLeitið til læknis
- Blóðleysi, blóð í þvagiLeitið til læknis
- BlóðnasirLeitið til læknis
- Höfuðverkur, sundlLeitið til læknis
- Magaverkur, ógleðiLeiti ð til læknis
- Marblettir eða blæðingar undir húðLeitið til læknis
- Útbrot, kláðiLeitið til læknis
Milliverkanir
Jónsmessurunni/jóhannesarjurt (jurtalyf sem notað er við þunglyndi) getur dregið úr virkni lyfsins. Vegna aukinnar blæðingarhættu á ekki að nota lyfið samliða með neinum öðrum segavarnarlyfjum
Nánari upplýsingar
Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með blæðingartilhneigingu
- þú sért með háan blóðþrýsting
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú takir einhver önnur lyf
- þú hafir nýlega fengið heilablæðingu
- þú sért með gervihjartalokur
| A-hlið | B-hlið | |
|---|---|---|
| Litur | Bleikur | Bleikur |
| Áletrun | 7X | I |
| Gerð | Filmuhúðuð tafla |
|---|---|
| Lögun | Hringlaga |
| Deilistrik | Nei |
| Þvermál | 8 mm |
| Grunnlögun | Kúpt |
| Styrkur | 30 mg |








