Emadine 0,05%
Augnlyf | Verðflokkur: G | Lyfseðilsskylt
Virkt innihaldsefni: Emedastín
Markaðsleyfishafi: Immedica Pharma | Skráð: 1. maí, 2003
Emadine 0,05% inniheldur virka efnið emedastín. Lyfið er notað til að meðhöndla augnangur af völdum árstíðabundins ofnæmis. Það hindrar áhrif histamíns í líkamanum, en histamín er það boðefni sem veldur helstu einkennum ofnæmis. Lyfið verkar staðbundið í augunum.
Notkun á lyfi
Lyfjaform:
Augndropar.
Venjulegar skammtastærðir:
1 dropi í sjúkt auga 2svar á dag.
Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Hámarksblóðþéttni næst á 1-2 klst.
Verkunartími:
Ekki að fullu þekktur.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.
Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá. Augndropa skal nota innan 4ra vikna frá því að innri umbúðir eru opnaðar. Gæta skal þess að dropasprotinn á glasinu snerti hvorki augnlokið, svæðið í kringum augað né annað yfirborð til að koma í veg fyrir mengun.
Ef skammtur gleymist:
Lyfið er venjulega notað eftir þörfum.
Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Hætta má notkun lyfsins þegar einkenni eru ekki lengur til staðar.
Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að valda óþægindum. Ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.
Langtímanotkun:
Klínískar rannsóknir á lyfinu hafa ekki staðið lengur en í 6 vikur þannig að ekki eru til upplýsingar um langtímanotkun.
Aukaverkanir
Algengasta aukaverkunin er sviði eða stingandi tilfinning í auganu þegar lyfinu er dreypt í það.
Aukaverkun | Tíðni | Leitið til læknis vegna einkenna | Leitaðu strax til læknis | Hættu strax töku lyfs | |||
---|---|---|---|---|---|---|---|
Algeng >1% | Sjaldgæf <1% | Ekki þekkt | Sem eru alvarleg | Í öllum tilvikum | |||
Augnþurrkur | |||||||
Erting, kláði og roði í augum | |||||||
Útbrot | |||||||
Þokusýn |
Milliverkanir
Séu önnur augnlyf notuð samtímis skal láta 10 mín. líða milli þess sem lyfin eru notuð í augu. Engar sértækar rannsóknir á milliverkunum hafa verið gerðar með Emadine 0,05%.
Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á
Má ekki nota með
Getur haft áhrif á
Varúð
Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú sért með skerta lifrar- eða nýrnastarfsemi
- þú takir einhver önnur lyf
Meðganga:
Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum. Ekki nota lyfið nema í samráði við lækni.
Brjóstagjöf:
Ekki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk.
Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 3ja ára.
Eldra fólk:
Ekki er mælt með notkun lyfsins fyrir fólk eldra en 65 ára.
Akstur:
Verði sjón þokukennd eftir notkun lyfsins skal ekki aka bíl fyrr en sjónin er aftur orðin skýr.
Áfengi:
Áfengi hefur ekki áhrif á verkun lyfsins.
Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.
Annað:
Sjúklingar sem nota mjúkar augnlinsur skulu bíða í 10-15 mín. eftir að lyfinu er dreypt í augu áður en linsurnar eru settar upp. Ekki á að dreypa lyfinu í augu þegar mjúkar augnlinsur eru á auganu.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.