Eplerenone Alvogen
Styrkleikar:
Þvagræsilyf
Lyfseðilsskylt
Verðflokkur G: Lyfið er niðurgreitt og fellur inn í greiðsluþrepakerfiðVirkt innihaldsefni: EplerenónSkráð 1. júní 2014
Epelerenone inniheldur virka efnið eplerenón, sem er þvagræsilyf með blóðþrýstingslækkandi verkun. Þvagræsilyf geta raskað hlutfalli natríum- og kalíumsalta sem skiljast út úr líkamanum með þvagi. Eplerenón er kalíumsparandi, það minnkar útskilnað kalíums og eykur útskilnað natríums. Lyfið er notað til að draga úr dauðsföllum vegna hjarta- og æðasjúkdóma og sjúkdómum hjá sjúklingum með einkenni um hjartabilun eftir nýlega kransæðastíflu

| A-hlið | B-hlið | |
|---|---|---|
| Litur | Gulur | Gulur |
| Áletrun | E25 | E25 |
| Gerð | Tafla |
|---|---|
| Lögun | Hringlaga |
| Deilistrik | Nei |
| Þvermál | 6,1 mm |
| Þykkt | 2,6 mm |
| Grunnlögun | Kúpt |
| Styrkur | 25 mg |
Notkun á lyfjum
LyfjaformTöflur til inntöku.
Venjulegar skammtastærðir50 mg á dag. Meðferð er hafin með 25 mg einu sinni á dag og aukin smám saman upp í 50 mg einu sinni á dag. Töflurnar gleypist með vatnsglasi.
Hversu langur tími uns verkun kemur framUm 2 klst.
Verkunartími2-3 dagar.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekiðForðastu mat sem inniheldur mikið kalíum, t.d. þurrkaða ávexti og svokallað heilsusalt.
GeymslaGeymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymistTaktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ekki er ástæða til að hafa áhyggjur ef einn skammtur gleymist. Taka ætti skammtinn þegar munað er eftir honum, en fyrir kvöldmat þar sem lyfið getur kallað á tíð þvaglát um nóttina. Ekki taka tvo skammta í einu.
Hvernig á að hætta töku lyfsinsEkki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni, annars er hætta á að sjúkdómur versni.
Ef tekinn er of stór skammturStakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.
LangtímanotkunÞað þarf að mæla magn kalíums í sermi reglulega meðan á meðferðinni stendur.
Aukaverkanir
Lyfið þolist almennt vel og aukaverkanir þess eru venjulega vægar og tímabundnar.
Algengar aukaverkanir (>1%):
- Niðurgangur, ógleðiLeitið til læknis
- Sundl, lágur blóðþrýstingurLeitið til læknis
Sjaldgæfar aukaverkanir (<1%):
- HjartabilunLeitið strax til læknis
- Verkur í fótum, nára eða fyrir brjóstiLeitið strax til læknis
Nánari upplýsingar
Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú sért með sykursýki
- þú takir einhver önnur lyf
MeðgangaTakmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum.
BrjóstagjöfEkki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk.
BörnLyfið er ekki ætlað börnum.
Eldra fólkVenjulegar skammtastærðir.
AksturLyfið getur valdið svima. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.
ÁfengiVeldur einnig auknum vökvaútskilnaði og því eru meiri líkur á vökvaskorti og timburmönnum. Æskilegt er að halda áfengisneyslu í lágmarki meðan lyfið er tekið.
ÍþróttirBannað í og utan keppni.
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem finna má á heimsíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.

| A-hlið | B-hlið | |
|---|---|---|
| Litur | Gulur | Gulur |
| Áletrun | E25 | E25 |
| Gerð | Tafla |
|---|---|
| Lögun | Hringlaga |
| Deilistrik | Nei |
| Þvermál | 6,1 mm |
| Þykkt | 2,6 mm |
| Grunnlögun | Kúpt |
| Styrkur | 25 mg |








