Estrofem 2 mg

Lyfjabokin 05 (1)
Leitaðu í Lyfjabókinni Hér finnur þú öll skráð lyf á Íslandi sem seld eru í apótekum
Kvenhormón

Lyfseðilsskylt

Verðflokkur G: Lyfið er niðurgreitt og fellur inn í greiðsluþrepakerfiðVirkt innihaldsefni: EstradíólSkráð 1. desember 1980

Estradíól er hormón sem líkaminn framleiðir. Það er gefið eitt og sér, í hormónameðferð eftir tíðahvörf eða eftir brottnám eggjastokka. Eftir tíðahvörf hætta eggjastokkarnir að framleiða estradíól og prógesterón. Hormónameðferðin miðast að því að vega skortinn upp sem verður og að slá á einkenni sem eru samfara honum. Hormónameðferð eftir tíðahvörf minnkar líkur á beinþynningu þar sem estradíól heldur áfram eðlilegu viðhaldi beina.

Tafla 2 mg Tafla

Notkun á lyfjum

LyfjaformTöflur til inntöku.
Venjulegar skammtastærðir2 mg á dag.
Hversu langur tími uns verkun kemur framMagn estradíóls í blóði eykst nokkrum klst. eftir inntöku. Einkenni hormónaskorts hverfa á nokkrum vikum eða mánuðum.
VerkunartímiEkki að fullu þekktur.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekiðEngin.
GeymslaGeymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymistTaktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef fleiri en 36 klst. líða frá síðasta skammti skaltu sleppa þeim sem gleymdist halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvær töflur í einu.
Hvernig á að hætta töku lyfsinsHætta skal uppbótarmeðferð eftir tíðahvörf í samráði við lækni.
Ef tekinn er of stór skammturStakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef stórir skammtar eru teknir eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.
LangtímanotkunÁn vandkvæða en ráðlegt er að fara reglulega í skoðun. Ákveðið nánar í samráði við lækni.

Aukaverkanir

Aukaverkanir eru tíðari í upphafi meðferðar og eftir því sem skammtar eru stærri.

Algengar aukaverkanir (>1%):
  • Eymsli í brjóstum, brjóstastækkun
    Leitið til læknis
  • Höfuðverkur, ógleði
    Leitið til læknis
  • Kviðverkir
    Leitið til læknis
  • Sinadráttur
    Leitið til læknis
  • Þunglyndi
    Leitið til læknis
  • Þyngdaraukning, bjúgur
    Leitið til læknis
Sjaldgæfar aukaverkanir (<1%):
  • Gula
    Leitið til læknis
  • Háþrýstingur
    Leitið til læknis
  • Breytingar í brjóstum
    Leitið strax til læknis
  • Verkur í fótum, nára eða fyrir brjósti
    Leitið strax til læknis

Milliverkanir

Lyf sem auka áhrif lifrarensíma, t.d. sum flogaveikilyf eða sýklalyf, geta dregið úr virkni lyfsins. Jóhannesarjurt og ginseng geta haft áhrif á virkni lyfsins.

Nánari upplýsingar

Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:

  • einhver í ættinni sé með sykursýki, hjarta- eða æðasjúkdóm
  • grunur leiki á um þungun
  • þú sért með astma
  • þú sért með háan blóðþrýsting, hjarta- eða æðasjúkdóm
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með mígreni
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú sért með rauða úlfa (lupus)
  • þú sért með sykursýki
  • þú hafir fengið krampa eða sért með flogaveiki
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú sért með blæðingar frá fæðingarvegi af óþekktum ástæðum
MeðgangaTakmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum.
BrjóstagjöfLyfið er aðeins notað eftir tíðahvörf.
BörnLyfið er ekki ætlað börnum.
Eldra fólkTakmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá konum eldri en 65 ára.
AksturLyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.
ÁfengiÍ litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.
ÍþróttirLeyft við æfingar og í keppni.
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem finna má á heimsíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.