Ezetrol
Blóðfitulækkandi lyf
Lyfseðilsskylt
Verðflokkur G/0: Lyfið er niðurgreitt og fellur inn í greiðsluþrepakerfiðVirkt innihaldsefni: EzetimíbSkráð 1. maí 2003
Ezetrol, sem inniheldur virka efnið ezetimíb, er gefið sjúklingum með of hátt kólesteról í blóði. Það er notað til að meðhöndla arfblendna og arfhreina ættgenga kólesterólhækkun sem og kólesterólhækkun sem ekki er ættgeng. Lyfið er stundum gefið með statín-lyfjum eða eitt sér ef statín-lyf þolast ekki eða er ekki talið viðeigandi. Ezetrol tilheyrir nýjum flokki fitulækkandi lyfja sem hindra sértækt frásog kólesteróls og skyldra jurtasteróla úr þörmum. Það leiðir til minni flutnings kólesteróls frá þörmum til lifrar. Statín-lyf draga úr myndun kólesteróls í lifrinni og saman veita þessi lyf viðbótarlækkun kólesteróls.

| A-hlið | B-hlið | |
|---|---|---|
| Litur | Hvítur | Hvítur |
| Áletrun | 414 |
| Gerð | Tafla |
|---|---|
| Lögun | Ílöng |
| Deilistrik | Nei |
| Lengd | 8 mm |
| Breidd | 4 mm |
| Þykkt | 2,5 mm |
| Grunnlögun | Flöt |
| Styrkur | 10 mg |
Notkun á lyfjum
LyfjaformTöflur til inntöku.
Venjulegar skammtastærðir10 mg á dag.
Hversu langur tími uns verkun kemur framUm 1-2 klst.
VerkunartímiEkki að fullu þekktur.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekiðMinni fituneysla er hluti af meðferðinni, bæði fyrir og meðan á meðferð stendur. Taka má lyfið með eða án fæðu.
GeymslaGeymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymistTaktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.
Hvernig á að hætta töku lyfsinsEkki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni, annars er hætta á að sjúkdómur versni.
Ef tekinn er of stór skammturStakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.
LangtímanotkunEngin þekkt vandkvæði.
Aukaverkanir
Lyfið þolist almennt vel og aukaverkanir þess eru venjulega vægar og tímabundnar.
Algengar aukaverkanir (>1%):
- HöfuðverkurLeitið til læknis
- Kviðverkir, niðurgangurLeitið til læknis
Sjaldgæfar aukaverkanir (<1%):
- GulaLeitið til læknis
- Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettirLeitið strax til læknis
- Verkir, eymsli og máttleysi í vöðvumLeiti ð strax til læknis
- Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikarLeitið strax til læknis
Nánari upplýsingar
Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú takir einhver önnur lyf
- þú sért með lifrarsjúkdóm
MeðgangaTakmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum.
BrjóstagjöfEkki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk.
BörnLyfið er ekki ætlað börnum yngri en 10 ára.
Eldra fólkVenjulegar skammtastærðir.
AksturLyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.
ÁfengiGetur aukið líkur á lifrarvandamálum. Gæta ætti hófsemi í áfengisdrykkju.
ÍþróttirLeyft við æfingar og í keppni.
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem finna má á heimsíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.

| A-hlið | B-hlið | |
|---|---|---|
| Litur | Hvítur | Hvítur |
| Áletrun | 414 |
| Gerð | Tafla |
|---|---|
| Lögun | Ílöng |
| Deilistrik | Nei |
| Lengd | 8 mm |
| Breidd | 4 mm |
| Þykkt | 2,5 mm |
| Grunnlögun | Flöt |
| Styrkur | 10 mg |








