Flúoxetín Actavis
Geðdeyfðarlyf | Verðflokkur: G/0 | Lyfseðilsskylt
Virkt innihaldsefni: Flúoxetín
Markaðsleyfishafi: Actavis | Skráð: 1. mars, 2000
Flúoxetín Actavis, sem inniheldur virka efnið flúoxetín, er geðdeyfðarlyf. Það tilheyrir frekar nýjum flokki geðdeyfðarlyfja sem hafa sérhæfð áhrif á virkni taugaboðefnisins serótóníns í heila. Talið er að breytingar á starfsemi taugafrumna sem nota þetta boðefni séu ein af orsökum geðdeyfðar. Eldri geðdeyfðarlyf eru ekki eins sérhæfð og hafa áhrif á fleiri boðefni. Flúoxetín og skyld lyf virðast hafa svipaða virkni og eldri lyfin á einkenni geðdeyfðar, þau bæta skap, auka líkamlega virkni, bæta matarlyst og auka áhuga á daglegu lífi. Nýrri lyfin hafa þó ekki eins róandi verkun og eru laus við margar alvarlegar aukaverkanir eldri lyfjanna. Einnig er minni hætta á eitrunum af völdum nýrri lyfjanna. Aftur á móti er líklegra að flúoxetín valdi einkennum eins og taugaveiklun, spennu og svefntruflunum, auk þess sem ógleði er algeng aukaverkun þess. Flúoxetín er notað við geðdeyfð, þráhyggjusýki, matgræðgiköstum (bulimia nervosa) og fyrirtíðavanlíðan.
Notkun á lyfi
Lyfjaform:
Lausnartöflur til inntöku.
Venjulegar skammtastærðir:
20-60 mg á dag. Töflurnar takist heilar eða leysist upp í vatni. Má skipta þeim í tvennt.
Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Fyrstu áhrif koma fram eftir 1-2 vikur, full verkun næst oft ekki fyrr en eftir 4 vikur.
Verkunartími:
Ekki að fullu þekktur.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.
Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymist:
Slepptu skammtinum sem gleymdist og haltu áfram að taka lyfið eins og venjulega eftir það. Ekki taka tvo skammta í einu.
Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Sjúkdómseinkenni geta aftur komið fram þegar töku lyfsins er hætt. Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.
Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir hafa verið stórir skammtar eða vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.
Langtímanotkun:
Án vandkvæða.
Aukaverkanir
Ógleði kemur fram hjá um 10% þeirra sem taka lyfið. Um 10-15% þeirra sem taka lyfið finna fyrir taugaveiklun og svefntruflunum í byrjun meðferðar. Algengt er að aukaverkanir í upphafi hverfi þegar meðferð er haldið áfram.
Aukaverkun | Tíðni | Leitið til læknis vegna einkenna | Leitaðu strax til læknis | Hættu strax töku lyfs | ||
---|---|---|---|---|---|---|
Algeng >1% | Sjaldgæf <1% | Sem eru alvarleg | Í öllum tilvikum | |||
Aukin eða minnkuð matarlyst | ![]() |
![]() |
||||
Blæðingatruflanir | ![]() |
![]() |
||||
Breytt bragðskyn | ![]() |
![]() |
||||
Hiti, hrollur | ![]() |
![]() |
||||
Hraður hjartsláttur, hjartsláttarónot | ![]() |
![]() |
||||
Höfuðverkur, svimi, þreyta | ![]() |
![]() |
||||
Krampar | ![]() |
![]() |
![]() |
|||
Kviðverkir, hægðatregða | ![]() |
![]() |
||||
Meltingartruflanir, vindgangur | ![]() |
![]() |
||||
Minnkuð kynhvöt eða getuleysi | ![]() |
![]() |
||||
Munnþurrkur, aukin svitamyndun | ![]() |
![]() |
||||
Ógleði, uppköst, niðurgangur | ![]() |
![]() |
||||
Sjóntruflanir | ![]() |
![]() |
||||
Skjálfti | ![]() |
![]() |
||||
Taugaveiklun, óróleiki, svefntruflanir | ![]() |
![]() |
||||
Útbrot og mikill kláði | ![]() |
![]() |
||||
Öndunarerfiðleikar | ![]() |
![]() |
![]() |
|||
Þyngdartap | ![]() |
![]() |
Milliverkanir
Jóhannesarjurt og ginkgo geta haft áhrif á virkni lyfsins. Hjá sjúklingum með sykursýki getur meðferð með SSRI lyfjum haft áhrif á sykurstjórnun (blóðsykurslækkun eða blóðsykurshækkun). Nauðsynlegt getur verið að aðlaga skammta af insúlíni og/eða sykursýkilyfjum til inntöku.
Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á
Má ekki nota með
- Aritavi
- Azilect
- Cymbalta
- Dexól
- Duloxetin Krka
- Duloxetin W&H
- Duloxetine Medical Valley
- Duloxetine Mylan
- Methergin
- Rasagilin Krka
- Yentreve
Getur haft áhrif á
- Abilify
- Abilify Maintena
- Abilify Maintena (Lyfjaver)
- Adalat Oros
- Akynzeo
- Aloxi
- Alprazolam Krka
- Alprazolam WH (hét áður Alprazolam Mylan)
- Alvofen Express
- Amiloride / HCT Alvogen
- Amitriptylin Abcur
- Anafranil
- Apidra
- Aripiprazol Krka
- Aripiprazol Medical Valley
- Aripiprazol W&H
- Arthrotec
- Arthrotec Forte
- Arzotilol
- Aspendos
- Atenolol Mylan
- Atomoxetin Actavis
- Atomoxetin Medical Valley
- Atomoxetine STADA
- Azarga
- Bloxazoc
- Brintellix
- Buronil
- Candpress Comp
- Carvedilol Alvogen (áður Carveratio)
- Carvedilol STADA
- Celebra
- Celecoxib Actavis
- Celecoxib Medical
- Centyl med kaliumklorid
- Centyl mite med kaliumklorid
- Cipralex
- Cipramil
- Cisordinol
- Cisordinol Acutard
- Cisordinol Depot
- Citalopram STADA
- CitraFleet
- Clarithromycin Alvogen
- Clarithromycin Krka
- Clopidogrel Krka
- Cloxabix
- Clozapin Medical
- Clozapine Actavis
- Cosopt sine
- Cozaar Comp
- Cozaar Comp Forte
- Darazíð
- Diclomex
- Dimax Rapid
- Donepezil Actavis
- Dorzolamide/Timolol Alvogen
- Dropizol
- Duokopt
- DuoTrav
- Efexor Depot
- Elvanse Adult
- Enalapril comp ratiopharm
- Enalapril HCTZ Medical Valley
- Enalapril-Hydrochlorthiazid Krka
- Esbriet
- Escitalopram Bluefish
- Escitalopram STADA
- Esopram
- Fixopost
- Flecainid STADA (Afskráð sept 2020)
- Fluanxol Depot
- Fluanxol Mite
- Fotil forte
- Furix
- Galantamin STADA
- Ganfort
- Glimeryl
- Grepid
- Haldol
- Haldol Depot
- Hydromed
- Hypotron
- Íbúfen
- Ibuprofen Bril (Afskráð feb 2023)
- Ibutrix
- Ibuxin (afskráð des 2022)
- ibuxin rapid
- Impugan
- Invega
- Klacid
- Klomipramin Mylan
- Laxoberal
- Laxoberal (Heilsa)
- Litarex
- Logimax
- Logimax forte
- Losartan/Hydrochlorothiazide Medical Valley
- Maxalt Smelt
- Metoprolin (Afskáð feb 2023)
- Metoprolol Alvogen
- Metoprololsuccinat Hexal
- Mianserin Mylan
- MicardisPlus (Afskráð feb 2023)
- Midodrin Evolan
- Minirin
- Míron
- Míron Smelt
- Mirtazapin Krka
- Modafinil Bluefish
- Modifenac
- Modiodal
- NOCDURNA
- Noritren
- Nozinan
- Nurofen Junior Appelsín
- Nurofen Junior Jarðarber
- Olanzapin Actavis
- Orfiril
- Orfiril Retard
- Oropram
- Paliperidon Krka
- Parapró
- Parkódín
- Parkódín forte
- Paxetin
- Peratsin
- Picoprep
- Pranolol
- Presmin Combo
- Propranolol hydrochloride
- Ríson
- Risperdal
- Risperdal Consta
- Risperidon Alvogen
- Risperidon Krka
- Rivaroxaban WH
- Rizatriptan Alvogen
- Rizatriptan Sumar Pharma (áður Rizatriptan ratiopharm)
- Seloken
- Seloken ZOC
- SEM mixtúra
- Serdolect
- Seroxat
- Sertral
- Sertralin Bluefish
- Sertralin Krka
- Sertralin WH
- Sinquan (Afskráð maí 2020)
- Sotalol Mylan
- Stesolid
- Stilnoct
- Strattera (Afskráð Feb 2023)
- Strefen
- Strefen Honung & Citron
- Strefen Körsbär & Mint (Afskráð mars 2023)
- Strefen Orange Sukkerfri
- Tafil
- Tafil Retard
- Tambocor
- Taptiqom Sine (áður Taptiqom)
- Tegretol
- Tegretol retard
- Tegretol Retard (Lyfjaver)
- Terbinafin Actavis
- Terbinafin Medical Valley
- Timosan Depot
- Tradolan
- Tramadol Actavis
- Tramadol Krka
- Tramól-L
- Trandate
- Travoprost/Timolol Medical Valley
- Travoprost/Timolol STADA
- TREVICTA
- Trilafon dekanoat
- Truxal
- Valpress Comp
- Valsartan Hydrochlorothiazide Krka
- Valsartan Hydrochlorothiazide ratiopharm
- Valsartan Hydroklortiazid Jubilant
- Venlafaxin Actavis
- Venlafaxin Krka
- Venlafaxin Medical Valley
- Venlafaxine Alvogen
- Venlafaxine Bluefish
- Voltafenak Rapid (afskráð sept 2022)
- Warfarin Teva
- Wellbutrin Retard
- Wellbutrin Retard (Lyfjaver)
- Xalcom
- Xarelto
- Xeplion
- Zalasta
- Zeldox
- Ziprazidon Actavis
- Zoloft
- Zovand
- Zyban
- Zypadhera (sjúkrahúslyf)
- Zyprexa
- Zyprexa Velotab
Varúð
Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú sért með sykursýki
- þú hafir fengið krampa eða sért með flogaveiki
- þú takir einhver önnur lyf
- þú sért með blæðingasjúkdóm
Meðganga:
Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum.
Brjóstagjöf:
Lyfið berst í brjóstamjólk og getur haft áhrif á barnið.
Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum.
Eldra fólk:
Venjulegar skammtastærðir.
Akstur:
Lyfið getur valdið svima og skert viðbragðsflýti. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.
Áfengi:
Í litlu magni hefur áfengi ekki áhrif á lyfið eða verkun þess. Almennt er mælt gegn því að neyta áfengis samhliða meðferð með geðdeyfðarlyfjum.
Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.