Flutiform

Lyfjabokin 05 (1)
Leitaðu í Lyfjabókinni Hér finnur þú öll skráð lyf á Íslandi sem seld eru í apótekum
Lyf gegn teppusjúkdómum í öndunarvegi

Lyfseðilsskylt

Verðflokkur G: Lyfið er niðurgreitt og fellur inn í greiðsluþrepakerfiðVirkt innihaldsefni: Flútíkasónprópíónat, FormóterólSkráð 1. janúar 2014

Flutiform inniheldur tvö virk efni, formóteról og flútíkasónprópíónat. Formóteról er langvirkt astmalyf. Það veldur vöðvaslökun í lungnaberkjum, víkkar öndunarveginn og auðveldar með því móti öndun. Flútíkasónprópíónat hefur öflug bólgueyðandi áhrif í lungunum með því að minnka flæði á bólgumyndandi efnum til lungnanna, en astmi er krónískur bólgusjúkdómur í lungunum. Berkjuvíkkandi áhrif formóteról valda því að bólgueyðandi lyfin komast betur til lungna og hafa meiri áhrif en ella.

Notkun á lyfjum

LyfjaformInnúðalyf.
Venjulegar skammtastærðirLyfið fæst í 3 styrkleikum. Venjulegur skammtur af þeim styrk sem læknirinn velur er 1-2 púst 2svar á dag.
Hversu langur tími uns verkun kemur framFormóteról byrjar að virka eftir 10-20 mín., full verkun næst á 2-3 klst. Flútíkasónprópíónat byrjar strax að virka en sjúklingur verður ekki var við breytingu fyrr en eftir um 10 daga.
VerkunartímiFormóteról verkar í um 12 klst. Verkunartími flútíkasónprópíónats er ekki að fullu þekktur en bólgurnar koma smám saman aftur sé sjúkdómurinn til staðar og notkun lyfsins hætt.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekiðEngin.
GeymslaGeymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymistNotaðu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að nota lyfið eins og venjulega. Ekki nota tvo skammta í einu.
Hvernig á að hætta töku lyfsinsEkki hætta notkun lyfsins nema í samráði við lækni. Hafi astmalyf verið notað í stórum skömmtum eða í langan tíma þarf að minnka skammta smám saman áður en notkun þess er hætt.
Ef tekinn er of stór skammturStakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulegir ættu ekki að skapa vanda. Ef notaðir eru mjög stórir skammtar eða vart verður við óvenjuleg einkenni skal strax hafa samband við lækni.
LangtímanotkunNota þarf lyfið reglulega til að ná hámarks árangri, jafnvel þótt einkenni séu ekki til staðar. Læknir þarf að fylgjast með astma til að bólgur versni ekki án þess að sjúklingur verði þess var.

Aukaverkanir

Algengasta aukaverkun astmalyfja sem innihalda flútíkasónprópíónat er sveppasýking í munni. Hægt er að minnka líkur á þessu með því að skola munninn eða bursta tennurnar eftir töku lyfsins. Margar aukaverkanir lyfsins koma aðeins fram í upphafi og hverfa þegar meðferð er haldið áfram.

Algengar aukaverkanir (>1%):
  • Hæsi
    Leitið til læknis
  • Hjartsláttarónot
    Leitið til læknis
  • Höfuðverkur, skjálfti
    Leitið til læknis
  • Sveppasýking í munni og hálsi
    Leitið til læknis
Sjaldgæfar aukaverkanir (<1%):
  • Hraður hjartsláttur, hjartsláttartruflanir
    Leitið strax til læknis
  • Öndunarerfiðleikar
    Leitið strax til læknis
  • Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar
    Leitið strax til læknis

Nánari upplýsingar

Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:

  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með hjartasjúkdóm eða háan blóðþrýsting
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú sért með ofvirkan skjaldkirtil
  • þú sért með sykursýki
  • þú hafir fengið lungnasýkingu, sér í lagi ef þú hefur fengið berkla
  • þú takir einhver önnur lyf
MeðgangaTakmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum. Leitið ráða hjá lækninum.
BrjóstagjöfEkki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk. Leitið ráða hjá lækninum.
BörnLyfið er ekki ætlað börnum yngri en 4ra ára. Þegar lyfið er gefið börnum getur þurft að meta hvaða lyfjaform á að nota.
Eldra fólkVenjulegar skammtastærðir. Þegar lyfið er gefið eldra fólki getur þurft að meta hvaða lyfjaform á að nota.
AksturÓlíklegt er að þetta lyf hafi áhrif á hæfni til aksturs eða notkunar véla. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.
ÁfengiÍ litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.
ÍþróttirBannað í og utan keppni. Hægt er að sækja um einfaldaða undanþágu til Undanþágunefndar Lyfjaráðs ÍSÍ.
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem finna má á heimsíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.