Fucidin (Heilsa)
Sýklalyf húðlyf
Lyfseðilsskylt
Verðflokkur 0: Lyfið er ekki niðurgreitt og fellur ekki inn í greiðsluþrepakerfiðVirkt innihaldsefni: FúsidínsýraSkráð 1. desember 1997
Fucidin inniheldur fúsidínsýru en það er sýklaeyðandi efni með þröngt verkunarsvið. Sýran drepur eða hemur fjölgun nokkurra tegunda baktería sem valda oft sýkingum í húð, t.d. Staphylococcus og Propionbacterium (veldur þrymlabólum). Sýran hefur einnig áhrif á bakteríustofna sem hafa myndað ónæmi fyrir öðrum sýklalyfjum, t.d. pensilínlyfjum.
Notkun á lyfjum
LyfjaformÚtvortis krem og smyrsli.
Venjulegar skammtastærðirBorið á sýkt húðsvæði í þunnu lagi 2-3svar á dag.
Hversu langur tími uns verkun kemur framMisjafnt eftir tegund sýkils og staðsetningu sýkingar.
VerkunartímiEkki að fullu þekktur.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekiðEngin.
GeymslaGeymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymistNotaðu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að nota lyfið eins og venjulega. Ekki nota tvo skammta í einu.
Hvernig á að hætta töku lyfsinsNotaðu lyfið eins lengi og læknir segir fyrir um þótt einkenni sýkingarinnar séu ekki lengur til staðar. Hætti lyfjanotkun of snemma gæti sýkingin náð sér aftur á strik.
Ef tekinn er of stór skammturStakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda.
LangtímanotkunLyfið er aðeins notað í skamman tíma í senn við tilfallandi sýkingum.
Aukaverkanir
Aukaverkanir eru oftast vægar og minnka eftir fyrstu dagana.
Algengar aukaverkanir (>1%):
- Sviði, erting í húðLeitið til læknis
Sjaldgæfar aukaverkanir (<1%):
- Útbrot og mikill kláðiLeitið til læknis
Milliverkanir
Engar milliverkanir eru þekktar við þetta lyfjaform.
Nánari upplýsingar
Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:
- grunur leiki á um þungun
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú takir einhver önnur lyf
MeðgangaEngin þekkt áhætta er af notkun lyfsins á meðgöngu. Ekki nota nein lyf á fyrstu 3 mánuðum meðgöngu nema í samráði við lækni.
BrjóstagjöfLyfið berst í brjóstamjólk en í venjulegum skömmtum er ólíklegt að það hafi áhrif á barnið.
BörnVenjulegar skammtastærðir.
Eldra fólkVenjulegar skammtastærðir.
AksturLyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.
ÁfengiÁfengi hefur ekki áhrif á verkun lyfsins.
ÍþróttirLeyft við æfingar og í keppni.
AnnaðLyfið má ekki bera á geirvörtur.
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem finna má á heimsíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.








