Furosemide Kalceks

Lyfjabokin 05 (1)
Leitaðu í Lyfjabókinni Hér finnur þú öll skráð lyf á Íslandi sem seld eru í apótekum
Þvagræsilyf

Lyfseðilsskylt

Verðflokkur 0: Lyfið er ekki niðurgreitt og fellur ekki inn í greiðsluþrepakerfiðVirkt innihaldsefni: FúrósemíðSkráð 5. september 2023

Furosemide Kalceks er hraðvirkt og kröftugt þvagræsilyf. Það er notað við bjúg (vökvasöfnun) vegna hjartabilunar, nýrnabilunar eða lifrarbilunar. Lyfið er einnig notað sem þáttur í lyfjameðferð við mjög háum blóðþrýstingi. Furosemide Kalcekser gefið ef nægileg þvagframleiðsla næst ekki með gjöf fúrósemíðs til inntöku eða ef ekki er hægt að gefa það með inntöku. Virka efnið fúrósemíð veldur kalíumtapi sem getur leitt til kalíumskorts. Kalíumskortur eykur líkur á óreglulegum hjartslætti, sérstaklega hjá sjúklingum sem eru veilir fyrir hjarta. Til þess að fyrirbyggja kalíumskort er kalíum oft gefið með fúrósemíði.

Notkun á lyfjum

LyfjaformStungulyf/innrennslislyf.
Venjulegar skammtastærðirLæknir eða hjúkrunarfræðingur gefur Furosemide Kalceks sem hæga inndælingu eða innrennsli (dreypi) í æð eða vöðva.
Hversu langur tími uns verkun kemur fram2-15 mín. eftir gjöf í bláæð.
VerkunartímiEinstaklingsbundið.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekiðÞar sem lyfið veldur kalíumtapi er ráðlegt að neyta grænmetis og ávaxta sem innihalda mikið af kalíumi. Lakkrís í miklu magni ásamt fúrósemíði getur valdið auknu tapi á kalíum. Töflur skal taka á fastandi maga, að minnsta kosti ½ klst fyrir máltíð eða 2 klst eftir máltið.
GeymslaGeymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymistEf þú heldur að skammtur sé að gleymast skaltu láta lækni eða hjúkrunarfræðing vita.
Hvernig á að hætta töku lyfsinsÍ samráði við lækni.
Ef tekinn er of stór skammturEf þú heldur að þú hafir fengið of mikið af lyfinu skaltu tafarlaust láta lækninn vita. Einkenni ofskömmtunar eru munnþurrkur, aukinn þorsti, óreglulegur hjartsláttur, skapbreytingar, vöðvakrampar eða verkir, ógleði eða uppköst, óvenjuleg þreyta eða máttleysi, veikur púls eða lystarleysi. Ef of stór skammtur af lyfinu hefur verið notaður, eða ef barn hefur í ógáti tekið inn lyfið skal hafa samband við lækni, sjúkrahús eða eitrunarmiðstöð (sími 543 2222).
LangtímanotkunYfirleitt án vandkvæða. Skipt verður yfir í gjöf með inntöku um leið og meðferðin leyfir.

Aukaverkanir

Langflestar aukaverkanir lyfsins eru skammtaháðar, þ.e. koma frekar fram og eru meiri eftir því sem skammtar eru stærri.

Algengar aukaverkanir (>1%):
  • Blóðkalíumlækkun
    Leitið til læknis
  • Hækkað kólesteról, hækkuð blóðfita
    Leitið til læknis
  • Lágur blóðþrýstingur
    Leitið til læknis
  • Þvagsýrugigt versnar
    Leitið til læknis
Sjaldgæfar aukaverkanir (<1%):
  • Suð fyrir eyrum, skert heyrn
    Leitið til læknis
  • Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettir
    Leitið strax til læknis
  • Ofnæmisviðbrögð, útbrot, kláði og öndunarerfiðleikar
    Leitið strax til læknis

Nánari upplýsingar

Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:

  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með blöðruhálskirtilsvandamál
  • þú sért með lágan blóðþrýsting
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú sért með rauða úlfa (lupus)
  • þú sért með sykursýki
  • þú hafir fengið þvagsýrugigt
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú sért blóðlítill
  • þú sért með lág kalíumgildi í blóði
MeðgangaNokkur hætta er á því að lyfið hafi áhrif á fóstur.
BrjóstagjöfLyfið berst í brjóstamjólk og getur haft áhrif á barnið. Lyfið á því ekki að nota með barn á brjósti.
BörnEingöngu má gefa ungbörnum og börnum yngri en 15 ára fúrósemíð til inndælingar í undantekningartilvikum við lífshættulegt ástand. Skammtar eru háðir líkamsþyngd.
Eldra fólkMinni skammtar eru oft notaðir.
AksturLyfið getur valdið svima. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.
ÁfengiVeldur líka auknum vökvaútskilnaði og því eru meiri líkur á vökvaskorti og timburmönnum. Æskilegt er að halda áfengisneyslu í lágmarki meðan lyfið er tekið.
ÍþróttirBannað í og utan keppni.
AnnaðFúrósemíð getur aukið blóðsykur og því verið varasamt fyrir sykursýkisjúklinga.
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem finna má á heimsíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.