Gaviscon (Heilsa)

Lyfjabokin 05 (1)
Leitaðu í Lyfjabókinni Hér finnur þú öll skráð lyf á Íslandi sem seld eru í apótekum
Sýrubindandi lyf

Lausasölulyf

Verðflokkur 0: Lyfið er ekki niðurgreitt og fellur ekki inn í greiðsluþrepakerfiðVirkt innihaldsefni: Algínsýra, Álhýdroxíð, NatríumhýdrógenkarbónatSkráð 28. október 1984

Algínsýra er efni sem hindrar það að innihald magans flæði til baka og upp í vélinda. Algínsýra binst sýru í maga og myndar hlaupkenndan massa með magainnihaldinu. Magainnihaldið verður því meira þykkfljótandi og slettist síður upp í vélinda. Algínsýra er notuð við bólgum í maga vegna offramleiðslu magasýru og líka við bólgum í vélinda vegna uppflæðis magainnihalds. Algínsýra er hér í samsetningu með sýrubindandi saltsamböndum, álhýdroxíði og natríumhýdrógenkarbónati sem draga enn frekar úr áhrifum magasýrunnar.

Notkun á lyfjum

LyfjaformMixtúra og tuggutöflur til inntöku.
Venjulegar skammtastærðirMixtúra: Fullorðnir og börn eldri en 2ja ára: 10-20 ml af mixtúru eftir máltíðir og fyrir svefn. Börn 6 mán-2ja ára: 5-10 ml af mixtúru á dag eftir þörfum. Börn yngri en 6 mánaða. 1-2 ml af mixtúru á dag fyrir hvert kg líkamsþyngdar. Gefið börnum í nokkrum skömmtum eftir hverja máltíð. Töflur: Fullorðnir: 1-3 tuggutöflur eftir þörfum um það bil 30 mínútum eftir máltíð og fyrir svefn eða samkvæmt fyrirmælum læknis. Börn: Gaviscon tuggutöflur má aðeins nota handa börnum yngri en 15 ára samkvæmt læknisráði.
Hversu langur tími uns verkun kemur framInnan við 15 mín. frá inntöku.
VerkunartímiMinnst 2 klst.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekiðEngin.
GeymslaGeymist í lokuðum upprunalegum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymistSlepptu þeim skammti sem gleymdist og taktu lyfið þegar einkenna verður vart. Ef lyfið er tekið að kvöldi fyrir svefn skaltu taka lyfið um leið og þú manst eftir því, en sleppa skammtinum ef það er ekki fyrr en daginn eftir.
Hvernig á að hætta töku lyfsinsHætta má töku lyfsins þegar einkenni eru ekki lengur til staðar.
Ef tekinn er of stór skammturStakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru mjög stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.
LangtímanotkunAlgínsýra er venjulega notuð í skamman tíma í senn. Langtímanotkun er þó án vandkvæða.

Aukaverkanir

Engar þekktar. Eins og almennt gildir um lausasölulyf eru aukaverkanir sjaldgæfar þegar farið er eftir reglum um notkun og venjulegar skammtastærðir eru notaðar.

Sjaldgæfar aukaverkanir (<1%):
  • Útbrot, kláði, bjúgur
    Leitið strax til læknis

Nánari upplýsingar

Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:

  • grunur leiki á um þungun
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú sért með skerta nýrnastarfsemi
  • þú takir einhver önnur lyf
MeðgangaEngin þekkt áhætta er af notkun lyfsins á meðgöngu. Ekki taka nein lyf á fyrstu 3 mánuðum meðgöngu nema í samráði við lækni.
BrjóstagjöfEngin þekkt áhætta er af notkun lyfsins samhliða brjóstagjöf.
BörnMinni skammtar eru notaðir. Mælt er með notkun mixtúru fyrir börn 2ja ára og yngri.
Eldra fólkVenjulegar skammtastærðir.
AksturLyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.
ÁfengiÍ litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.
ÍþróttirLeyft við æfingar og í keppni.
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem finna má á heimsíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.