Haldol
Lyfseðilsskylt
Haldol inniheldur virka efnið halóperídól. Lyfið er sefandi og það dregur mikið úr sturlunareinkennum sem fylgja geðklofa, oflæti og elliglöpum. Það hefur einnig áhrif á drykkjuóráð (delerium tremens), alvarlegustu fráhvarfseinkenni drykkjusýki. Talið er að þessi einkenni komi fram vegna of mikillar virkni ákveðinna taugaboðefna í heila þaðan sem skapferli, hegðun og skynjun er stjórnað. Halóperídól minnkar virkni eins þessara boðefna, eða dópamíns. Halóperídól verkar einnig kvíðastillandi og hemur uppsölu en hefur mjög veika, róandi og svæfandi verkun.

| A-hlið | B-hlið | |
|---|---|---|
| Litur | Hvítur | Hvítur |
| Áletrun | JANSSEN |
| Gerð | Tafla |
|---|---|
| Lögun | Hringlaga |
| Deilistrik | Já |
| Þvermál | 6,5 mm |
| Þykkt | 2,5 mm |
| Grunnlögun | Kúpt |
| Styrkur | 1 mg |
Notkun á lyfjum
Aukaverkanir
Algengustu aukaverkanir lyfsins eru hreyfitruflanir og koma fram hjá um 40-76% þeirra sem taka lyfið. Alvarlegustu aukaverkanir þess eru síðkomnar hreyfitruflanir af notkun lyfsins til lengri tíma. Þær koma fram sem ósjálfráðar hreyfingar, oftast í andlitsvöðvum, og eru í sumum tilfellum óafturkræfar.
- Höfuðverkur, svimi, svefnhöfgiLeitið til læknis
- Hreyfitruflanir, parkinsonseinkenniLeitið til læknis
- ÞunglyndiLeitið til læknis
- Brjóstastækkun karlmannaLeitið til læknis
- GulaLeitið til læknis
- Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettirLeitið strax til læknis
- Hraður hjartsláttur, hjartsláttartruflanirLeitið strax til læknis
- KramparLeitið strax til læknis
- ÞvagtregðaLeitið strax til læknis
- Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikarLeitið strax til læknis
Milliverkanir
Halóperídól eykur miðtaugakerfisbælandi áhrif annarra lyfja, þ.á.m. alkóhóls, svefnlyfja, róandi lyfja og sterkra verkjalyfja.
Nánari upplýsingar
Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með gláku eða hækkaðan augnþrýsting
- þú sért með hjartasjúkdóm
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú sért með ofvirkan skjaldkirtil
- þú sért með parkinsonsveiki
- þú sért með vöðvaslensfár (myasthenia gravis)
- þú hafir fengið krampa eða sért með flogaveiki
- þú hafir greinst með krabbamein í brjósti
- þú takir einhver önnur lyf

| A-hlið | B-hlið | |
|---|---|---|
| Litur | Hvítur | Hvítur |
| Áletrun | JANSSEN |
| Gerð | Tafla |
|---|---|
| Lögun | Hringlaga |
| Deilistrik | Já |
| Þvermál | 6,5 mm |
| Þykkt | 2,5 mm |
| Grunnlögun | Kúpt |
| Styrkur | 1 mg |








