Halltada

Lyfjabokin 05 (1)
Leitaðu í Lyfjabókinni Hér finnur þú öll skráð lyf á Íslandi sem seld eru í apótekum
Þvagfæralyf

Lyfseðilsskylt

Verðflokkur 0: Lyfið er ekki niðurgreitt og fellur ekki inn í greiðsluþrepakerfiðVirkt innihaldsefni: TadalafílSkráð 1. september 2025

Tadalafíl, virka efni lyfsins, er notað við stinningarvanda hjá körlum og minnkar niðurbrot á æðavíkkandi efni í getnaðarlim. Þetta veldur slökun á sléttum vöðvum í limnum, blóðflæði til hans eykst og bætir þannig stinningu. Þetta æðavíkkandi efni myndast í limnum við kynferðislega örvun og því veldur lyfið ekki stinningu eitt sér heldur þarf örvun til þess að lyfið virki. Áhrif lyfsins eru að mestu leyti bundin við æðar í getnaðarlimnum. Það getur haft einhver æðavíkkandi áhrif á öðrum stöðum í líkamanum, en í venjulegum skömmtum eru þau óveruleg. Lyfið getur þó leitt til tímabundinnar lækkunar á blóðþrýstingi vegna þessara æðavíkkandi áhrifa. Halltada er einnig notað til meðferðar hjá fullorðnum karlmönnum einkenni frá þvagfærum sem tengjast algengum sjúkdómi sem kallast góðkynja stækkun blöðruhálskirtils. Lyfið er alls ekki ætlað konum.

Notkun á lyfjum

LyfjaformTöflur til inntöku.
Venjulegar skammtastærðir5-20 mg í senn einu sinni á dag. Athugið að Halltada verkar ekki án kynferðislegrar örvunar. Töflurnar gleypist heilar með vatnsglasi. Halltada 10 mg og 20 mg er ætlað til notkunar fyrir fyrirhugað kynlíf og er ekki ráðlagt til samfelldrar daglegrar notkunar. Töfluna skal taka að minnsta kosti 30 mínútum fyrir kynlíf.
Hversu langur tími uns verkun kemur framUm 30 mín.
VerkunartímiAllt að 36 klst.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekiðEngin.
GeymslaGeymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymistTaktu næsta skammt um leið og þú manst eftir því en ekki tvöfalda skammt til að bæta upp töflu sem gleymst hefur að taka.
Hvernig á að hætta töku lyfsinsEf lyfið er tekið við stinningarvanda má hætta töku þess hvenær sem er. Ef lyfið er tekið við stækkun blöðruhálskirtils geta einkenni gert vart við sig eftir að töku lyfsins er hætt, hafið samband við lækni.
Ef tekinn er of stór skammturStakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Þó eru meiri líkur á að aukaverkanir lyfsins komi fram eftir því sem stærri skammtar eru teknir. Ef teknir eru stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.
LangtímanotkunVirðist án vandkvæða.

Aukaverkanir

Aukaverkanir eru yfirleitt tímabundnar og vægar. Algengustu aukaverkanirnar eru höfuðverkur og meltingartruflanir, sem koma fyrir í meira en 10% tilfella.

Algengar aukaverkanir (>1%):
  • Bakverkur eða vöðvaverkur
    Leitið til læknis
  • Hjartsláttarónot
    Leitið til læknis
  • Höfuðverkur, svimi
    Leitið til læknis
  • Meltingartruflanir, kviðverkir
    Leitið til læknis
  • Nefstífla
    Leitið til læknis
Sjaldgæfar aukaverkanir (<1%):
  • Vélindabakflæði
    Leitið til læknis
  • Yfirlið
    Leitið til læknis
  • Hjartsláttartruflanir, hraður hjartsláttur
    Leitið strax til læknis
  • Langvarandi stinning
    Leitið strax til læknis
  • Sjónskerðing
    Leitið strax til læknis
  • Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar
    Leitið strax til læknis

Milliverkanir

Greipaldinsafi getur haft áhrif á lyfið og skal því ekki drekka hann samhliða töku lyfsins.

Nánari upplýsingar

Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:

  • þú sért með blóðsjúkdóm
  • þú sért með hjarta- eða æðasjúkdóm
  • þú sért með óeðlilegan getnaðarlim
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú sért með skerta lifrar- eða nýrnastarfsemi
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú sért með mænuskaða eða annan sjúkdóm í miðtaugakerfi
  • þú hafir fengið grindarholsáverka
MeðgangaLyfið er ekki ætlað konum.
BrjóstagjöfLyfið er ekki ætlað konum.
BörnLyfið er ekki ætlað börnum yngri en 18 ára.
Eldra fólkVenjulegar skammtastærðir.
AksturLyfið getur valdið svima. Óráðlegt er að aka bíl fyrr en áhrif lyfsins eru liðin hjá.
ÁfengiÁfengisneysla getur lækkað blóðþrýsting tímabundið. Ef þú hefur tekið eða ætlar að taka Halltada skaltu forðast að neyta mikils áfengis. Áfengisneysla getur einnig haft áhrif á getu til að ná stinningu.
ÍþróttirLeyft við æfingar og í keppni.
AnnaðSjúklingar sem fá langvarandi stinningu sem varir í 4 klst. eða lengur eiga að hafa strax samband við lækni.
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem finna má á heimsíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.