Hydroxocobalamin G.L. Pharma

Blóðskortslyf | Verðflokkur: G | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Hýdroxókóbalamín

Markaðsleyfishafi: G. L. Pharma | Skráð: 3. maí, 2023

Hýdroxókóbalamín nefnist öðru nafni B12-vítamín. Til að blóðmyndun sé eðlileg er mikilvægt að nægjanlegt magn kóbalamíns sé til staðar í líkamanum, auk fólínsýru og járns. Skortur á kóbalamíni í líkamanum getur m.a. orsakast af því að ekki er nóg af því í fæðunni, en einnig getur ástæðan verið sú að líkamann vantar svokallaðan innri þátt (intrinsic factor), en það er efnisþáttur sem hjálpar til í frásogi kóbalamíns. Þar sem kóbalamín á ríkan þátt í blóðmyndun líkamans eru skortseinkennin venjulega í samræmi við það eins og til að mynda aukin þreyta, tíðari marblettir og blæðingar úr sárum. Þrátt fyrir fjölda rannsókna hefur enn ekki tekist að komast að því hver verkun kóbalamíns er í smáatriðum.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Stungulyf í vöðva.

Venjulegar skammtastærðir:
1 ml (1 mg) í vöðva á 1-3ja mánaða fresti. Upphafsmeðferð er oft 1 ml í vöðva á dag eða annan hvern dag í 1-2 vikur.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Áhrifin koma venjulega fljótt fram.

Verkunartími:
1 mg skammtur endist í 2-10 mánuði.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymið lyfið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Geymið við lægri hita en 30°C.

Ef skammtur gleymist:
Hafa samband við lækni.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Ofskömmtun er mjög ólíkleg þar sem inndæling er framkvæmd af heilbrigðisstarfsmanni. Hafðu samband við lækninn eða eitrunarmiðstöð (sími 543 2222) ef þú heldur að þú hafir fengið of mikið af lyfinu. Venjulega fylgja engin einkenni ofskömmtunar.

Langtímanotkun:
Ætti ekki að vera vandkvæðum háð.


Aukaverkanir

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Óreglulegur hjartsláttur      
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar        

Milliverkanir

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:
Engin þekkt áhætta er af notkun lyfsins á meðgöngu.

Brjóstagjöf:
Talið er óhætt fyrir mjólkandi móður að nota lyfið.

Börn:
Venjulegar skammtastærðir.

Eldra fólk:
Venjulegar skammtastærðir.

Akstur:
Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.

Áfengi:
Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.