Ibetin

Lyfjabokin 05 (1)
Leitaðu í Lyfjabókinni Hér finnur þú öll skráð lyf á Íslandi sem seld eru í apótekum
Bólgueyðandi lyf og gigtarlyf

Lausasölulyf

Verðflokkur 0: Lyfið er ekki niðurgreitt og fellur ekki inn í greiðsluþrepakerfiðVirkt innihaldsefni: ÍbúprófenSkráð 20. júlí 2022

Ibetin er bólgueyðandi lyf með verkjastillandi og hitalækkandi verkun. Virka efnið íbúprófen dregur úr myndun prostaglandínefna í líkamanum, en þau valda meðal annars bólgumyndun. Ibetin er notað sem meðferð við tímabundnum verkjum, mígreni, tíðaverkjum og/eða hita hjá fullorðnum eða unglingum.

Notkun á lyfjum

LyfjaformTöflur til inntöku.
Venjulegar skammtastærðirFullorðnir: 400 mg í senn, mest 3svar á dag. Unglingar 12 ára og eldri og yfir 40 kg: 200-400 mg í senn, mest 3svar á dag. Aðrar skammtastærðir skal aðeins taka í samráði við lækni. Töflurnar takist inn með vatnsglasi, með eða eftir mat.
Hversu langur tími uns verkun kemur framÁhrif á höfuðverk koma fram á 15 mín. Áhrif á gigt koma fram eftir u.þ.b. eina viku.
VerkunartímiMisjafn eftir ástandi sjúklings.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekiðEngin.
GeymslaGeymist í lokuðum umbúðum við eða undir stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymistTaktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.
Hvernig á að hætta töku lyfsinsSjúkdómurinn getur versnað þegar hætt er að taka lyfið. Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni. Ef lyfið er tekið við tilfallandi verk má hætta að taka það þegar ekki gerist lengur þörf fyrir það.
Ef tekinn er of stór skammturStakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skaltu hafa samband við lækni, sjúkrahús eða eitrunarmiðstöð (sími 543 2222).
LangtímanotkunVið langtímanotkun getur lyfið valdið magasári og magablæðingu. Því getur verið nauðsynlegt að fara reglulega í eftirlit til læknis sé lyfið notað í langan tíma.

Aukaverkanir

Algengustu aukaverkanir lyfsins eru meltingaróþægindi og niðurgangur og koma fyrir hjá 10-30% þeirra sem að taka lyfið.

Algengar aukaverkanir (>1%):
  • Höfuðverkur, þreyta, svimi
    Leitið til læknis
  • Kviðverkir, meltingartruflanir, hægðatregða
    Leitið til læknis
  • Ógleði, niðurgangur, magaóþægindi
    Leitið til læknis
  • Syfja, svefnleysi
    Leitið til læknis
  • Uppköst
    Leitið til læknis
  • Uppþemba, brjóstsviði
    Leitið til læknis
  • Svartar eða blóðugar hægðir, blóð í þvagi
    Leitið strax til læknis
Sjaldgæfar aukaverkanir (<1%):
  • Gula
    Leitið til læknis
  • Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettir
    Leitið strax til læknis
  • Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar
    Leitið strax til læknis

Nánari upplýsingar

Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:

  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með astma
  • þú sért með bólgusjúkdóm í þörmum
  • þú sért með hjarta- eða æðasjúkdóm
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með maga- eða skeifugarnarsár
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú sért með rauða úlfa (lupus)
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú sért með hlaupabólu
  • þú sért með ofnæmi fyrir öðrum bólgueyðandi lyfjum
MeðgangaNokkur hætta er á því að lyfið hafi áhrif á fóstur. Ekki má taka lyfið á síðustu mánuðum meðgöngu.
BrjóstagjöfLyfið berst í brjóstamjólk en í venjulegum skömmtum er ólíklegt að það hafi áhrif á barnið.
BörnLyfið er ekki ætlað börnum yngri 12 ára nema í samráði við lækni.
Eldra fólkAldraðir eru viðkvæmari fyrir aukaverkunum lyfsins.
AksturLyfið hefur almennt ekki áhrif á aksturshæfni.
ÁfengiGetur aukið ertandi áhrif lyfsins á magaslímhúð.
ÍþróttirLeyft við æfingar og í keppni.
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem finna má á heimsíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.