Inbrija
Lyf við Parkinsonsjúkdómi
Lyfseðilsskylt
Verðflokkur G: Lyfið er niðurgreitt og fellur inn í greiðsluþrepakerfiðVirkt innihaldsefni: LevódópaSkráð 1. maí 2026
Inbrija er lyf sem notað er til innöndunar til að meðhöndla versnun einkenna parkinsonsveiki þegar regluleg meðferð virkar ekki nógu vel.

| A-hlið | B-hlið | |
|---|---|---|
| Litur | Hvítur | Hvítur |
| Áletrun | Tvær svartar rendur | A42 |
| Gerð | Hylki |
|---|---|
| Lögun | Lok/botn (hylki) |
| Deilistrik | Nei |
| Styrkur | 33 mg |
Notkun á lyfjum
LyfjaformHylki í innöndunartæki.
Venjulegar skammtastærðir2 hylki allt að 5 sinnum á dag. Hylkin eru sett í innöndunartækið, það má ekki gleypa hylkin.
Hversu langur tími uns verkun kemur framLyfið virkar fljótlega eftir notkun.
GeymslaGeymið lyfið þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymistÁ ekki við þar sem lyfið er notað eftir þörfum.
Ef tekinn er of stór skammturSkaltu leita læknishjálpar tafarlaust. Þú finnur kannski fyrir ringlun eða óróa og hjartslátturinn kann að vera hægari eða hraðari en venjulega.
LangtímanotkunHugsanlega þarf að framkvæma próf á hjarta, lifur, nýrum og bl óðfrumum meðan á langtímameðferð stendur með lyfjunum.
Aukaverkanir
Algengar aukaverkanir (>1%):
- Erting í hálsiLeitið til læknis
- HóstiLeitið til læknis
- HreyfitruflanirLeitið til læknis
- Ógleði, uppköstLeitið til læknis
- SýkingarLeitið til læknis
- Tilhneiging til að dettaLeitið til læknis
Sjaldgæfar aukaverkanir (<1%):
- Ofnæmisviðbrögð, útbrot, kláði og öndunarerfiðleikarLeitið strax til læknis
- Sefunarheilkenni (Hiti, vöðvastífleiki, svitamyndun eða skert meðvitund)Leitið strax til læknis
- Svartar eða blóðugar hægðirLeitið strax til læknis
Nánari upplýsingar
Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:
- hvort þú sért með gláku
- þú sért með einhvern lungnasjúkdóm
- þú sért með hjarta-, lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú takir einhver önnur lyf
MeðgangaEkki er mælt með meðferð með Inbrija á meðgöngu eða hjá konum á barneignaraldri sem nota ekki getnaðarvörn.
BrjóstagjöfKonur ættu ekki að hafa börn á brjósti meðan á meðferð stendur með Inbrija.
BörnLyfið er ekki ætlað börnum.
Eldra fólkVenjulegir skammtar.
AksturLyfið getur valdið miklum svefnhöfga, sundli og skyndilegum svefnköstum. Þú skalt ekki aka nema þú sért laus við þessar aukaverkanir.
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem finna má á heimsíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.

| A-hlið | B-hlið | |
|---|---|---|
| Litur | Hvítur | Hvítur |
| Áletrun | Tvær svartar rendur | A42 |
| Gerð | Hylki |
|---|---|
| Lögun | Lok/botn (hylki) |
| Deilistrik | Nei |
| Styrkur | 33 mg |








