Jaydess

Lyfjabokin 05 (1)
Leitaðu í Lyfjabókinni Hér finnur þú öll skráð lyf á Íslandi sem seld eru í apótekum
Getnaðarvörn

Lyfseðilsskylt

Verðflokkur 0: Lyfið er ekki niðurgreitt og fellur ekki inn í greiðsluþrepakerfiðVirkt innihaldsefni: LevónorgestrelSkráð 1. janúar 2014

Jaydess er getnaðarvarnarlyf og nefnist lykkjan í daglegu tali. Lyfið inniheldur eitt virkt efni (hormón), levónorgestrel. Levónorgestrel er samtengt hormón sem hefur sömu áhrif í líkamanum og kvenhormónið prógesterón. Levónorgestrel veldur breytingum á slímhúð legsins með þeim afleiðingum að frjóvguð eggfruma nær síður að hreiðra þar um sig. Leghálsslímið þykknar og sáðfrumur eiga erfitt með að komast upp leghálsinn.

Notkun á lyfjum

LyfjaformHormónalykkja í leg.
Venjulegar skammtastærðir1 lykkja á 3 ára fresti, gefur frá sér að meðaltali 6 míkrógrömm á sólarhring.
Hversu langur tími uns verkun kemur fram1 sólarhringur.
VerkunartímiAllt að 3 ár.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekiðEngin.
GeymslaGeymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymistEngin hætta er á því að skammtur gleymist vegna staðsetningar lyfsins.
Hvernig á að hætta töku lyfsinsHætta má notkun getnaðarvarnarlyfs hvenær sem hentar.
Ef tekinn er of stór skammturHverfandi hætta er á ofskömmtun. Ef vart verður við óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.
LangtímanotkunÁn vandkvæða en ráðlegt er að fara reglulega í skoðun. Ákveðið nánar í samráði við lækni.

Aukaverkanir

Aukaverkanir eru algengari fyrstu mánuðina eftir uppsetningu, en hjaðna við langtíma notkun.

Algengar aukaverkanir (>1%):
  • Breytingar á blæðingum
    Leitið til læknis
  • Ógleði, höfuðverkur
    Leitið til læknis
  • Skapbreytingar
    Leitið til læknis
  • Spenna í brjóstum
    Leitið til læknis
  • Útbrot, kláði
    Leitið til læknis
  • Útferð
    Leitið til læknis
  • Verkir í kviðarholi og baki
    Leitið til læknis
  • Þyngdarbreytingar, bjúgur
    Leitið til læknis

Milliverkanir

Jóhannesarjurt og ginseng geta haft áhrif á virkni lyfsins.

Nánari upplýsingar

Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:

  • grunur leiki á um þungun
  • þú sért með háan blóðþrýsting, hjarta- eða æðasjúkdóm
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með mígreni
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú sért með sykursýki
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú sért með blæðingar frá fæðingarvegi af óþekktum ástæðum
MeðgangaEkki má nota Jaydess á meðgöngu.
BrjóstagjöfLyfið berst í brjóstamjólk en í venjulegum skömmtum er ólíklegt að það hafi áhrif á barnið.
BörnLyfið er ekki ætlað börnum.
Eldra fólkLyfið er venjulega ekki notað.
AksturLyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.
ÍþróttirLeyft við æfingar og í keppni.
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem finna má á heimsíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.