Kabiven

Lyfjabokin 05 (1)
Leitaðu í Lyfjabókinni Hér finnur þú öll skráð lyf á Íslandi sem seld eru í apótekum
Lausnir til næringar í æð

Lyfseðilsskylt

Verðflokkur 0: Lyfið er ekki niðurgreitt og fellur ekki inn í greiðsluþrepakerfiðVirkt innihaldsefni: BlöndurSkráð 27. maí 2003

Kabiven er lausn sem inniheldur næringarefni og er gefið í æð þeim sem eru ófærir um að neyta hefðbundins matar. Kabiven inniheldur amínósýrur, fitu, glúkósa og blóðsaltalausnir.

Notkun á lyfjum

LyfjaformInnrennslislyf.
Venjulegar skammtastærðirLyfið er gefið með hægu innrennsli í miðlæga bláæð á 12-24 klst. tímabili. Skammtur Kabiven fer eftir líkamsþyngd og hæfni líkamans til að vinna úr fitu og sykri.
GeymslaGeymið lyfið þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymistÁ ekki við.
Hvernig á að hætta töku lyfsinsÍ samráði við lækni.
Ef tekinn er of stór skammturÓlíklegt er að of mikið sé gefið af innrennslinu þar sem læknirinn eða hjúkrunarfræðingur hafa eftirlit með þér á meðan meðferðinni stendur. Einkenni ofskömmtunar geta verið ógleði, uppköst, aukin svitamyndun og bjúgur. Láttu lækninn eða hjúkrunarfræðing vita strax ef þú færð einhver einkenni eða heldur að þú hafi fengið of mikið af Kabiven.
LangtímanotkunVið langtíma næringargjöf í bláæð þarf að huga að skömmtun snefilefna þar sem aukinn þvagútskilnaður snefilefnanna kopars og sinks fylgir í kjölfar innrennslis amínósýra í bláæð.

Aukaverkanir

Eins og við á um öll lyf getur þetta lyf valdið aukaverkunum en það gerist þó ekki hjá öllum.

Algengar aukaverkanir (>1%):
  • Lítillega hækkaður líkamshiti
    Leitið til læknis
Sjaldgæfar aukaverkanir (<1%):
  • Höfuðverkur, þreyta
    Leitið til læknis
  • Magaverkur, ógleði
    Leitið til læknis
  • Ofnæmisviðbrögð, útbrot, kláði og öndunarerfiðleikar
    Leitið strax til læknis

Milliverkanir

Látið lækninn eða lyfjafræðing vita um öll önnur lyf sem eru notuð, hafa nýlega verið notuð eða kynnu að verða notuð. Og þá sérstaklega heparín, warfarín eða insúlín.

Nánari upplýsingar

Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:

  • þú sért með hjarta-, lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú sért með sykursýki
  • þú sért með skjaldkirtilssjúkdóm
  • þú sért með háa blóðfitu
  • þú sért með sýkingu
  • þú sért með ofnæmi fyrir eggjum
  • þú sért með ofnæmi fyrir hnetum og soja
  • þú sért með blóðstorknunarsjúkdóm
  • líkami þinn inniheldur of mikinn vökva (ofvökvun)
MeðgangaEngar sértækar rannsóknir hafa verið gerðar til að meta öryggi Kabiven á meðgöngu. Læknirinn verður að vega og meta kosti og galla áður en Kabiven er gefið á meðgöngu.
BrjóstagjöfEngar sértækar rannsóknir hafa verið gerðar til að meta öryggi Kabiven við brjóstagjöf. Læknirinn verður að vega og meta kosti og galla áður en Kabiven er gefið konum með barn á brjósti.
BörnLyfið er ætlað börnum frá 2 ára aldri.
AksturLyfið hefur ekki áhrif á hæfni til aksturs.
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem finna má á heimsíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.