Kaliumklorid Orifarm (Lyfjaver)

óskráð | Verðflokkur: G | Lausasölulyf

Virkt innihaldsefni: Kalíum

Markaðsleyfishafi: Orifarm Generics | Skráð: 16. apríl, 2021

Kaliumklorid Orifarm (Lyfjaver) inniheldur kalíum en kalíum er mikilvægt fyrir starfsemi frumna í líkamanum. Lyf sem innihalda kalíum eru notuð til þess að meðhöndla eða fyrirbyggja kalíumskort. Sum þvagræsandi hjartalyf eins og hýdróklórtíazíð og fúrósemíð, geta valdið auknum útskilnaði kalíums með þvagi og nauðsynlegt er að vega upp þennan missi. Það er gert með lyfjum sem innihalda kalíum.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Forðatöflur til inntöku.

Venjulegar skammtastærðir:
750-1500 mg í senn 2-3svar á dag. Töflurnar gleypist heilar með vatnsglasi.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Lyfið byrjar strax að virka.

Verkunartími:
Fer eftir því hversu hratt kalíum tapast úr líkamanum.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Hætta má töku lyfsins þegar forsendur fyrir töku þess eru ekki lengur til staðar.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Stórir skammtar geta þó valdið alvarlegum einkennum. Hafið samband við lækni ef stórir skammtar eru teknir eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni.

Langtímanotkun:
Án vandkvæða.


Aukaverkanir

Eins og almennt gildir um lausasölulyf eru aukaverkanir sjaldgæfar þegar farið er eftir reglum um notkun og venjulegar skammtastærðir eru notaðar. Of stórir skammtar geta þó valdið alvarlegum einkennum.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Skjálfti, hraður hjartsláttur, magaverkir          

Milliverkanir

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun
  • þú sért með Addisonssjúkdóm
  • þú sért með skerta nýrnastarfsemi
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú sért með þrengsli í vélinda

Meðganga:
Engin þekkt áhætta er af notkun lyfsins á meðgöngu. Lyf sem valda kalíumskorti eru þó almennt ekki notuð á meðgöngu. Ekki taka nein lyf á fyrstu 3 mánuðum meðgöngu nema í samráði við lækni.

Brjóstagjöf:
Engin þekkt áhætta er af notkun lyfsins samhliða brjóstagjöf.

Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum.

Eldra fólk:
Venjulegar skammtastærðir.

Akstur:
Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.

Áfengi:
Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.