Klomipramin Viatris
Lyfseðilsskylt
Klómípramín er geðdeyfðarlyf. Það tilheyrir flokki þríhringlaga geðdeyfðarlyfja, sem eru svo nefnd vegna efnafræðilegrar byggingar sinnar. Lyf í þessum flokki voru þau fyrstu sem notuð voru við geðdeyfð en verkunarmáti og aukaverkanir þeirra flestra eru svipaðar. Þau hafa áhrif á flest einkenni geðdeyfðar, bæta skap, auka líkamlega virkni, bæta matarlyst og auka áhuga á daglegu lífi. Þessi áhrif koma aðeins fram hjá sjúklingum með geðdeyfð en sjást ekki ef heilbrigðir taka lyfin. Helstu gallar þríhringlaga geðdeyfðarlyfjanna eru þeir að aukaverkanir eru nokkuð tíðar og að töluverð hætta er á eiturverkunum ef mjög stórir skammtar eru teknir. Auk verkunar á geðdeyfð hefur klómípramín kvíðastillandi áhrif en það hefur minni róandi áhrif en flest önnur lyf í þessum flokki. Það er notað við geðdeyfð og kvíðatengdu þunglyndi og hefur einnig notagildi við þráhyggjusýki (obsessive-compulsive disorder) og sem hjálparmeðferð við langvarandi verkjum.

| A-hlið | B-hlið | |
|---|---|---|
| Litur | Hvítur | Hvítur |
| Áletrun | CI yfir 25 | G |
| Gerð | Tafla |
|---|---|
| Lögun | Hringlaga |
| Deilistrik | Nei |
| Þvermál | 5,5 mm |
| Þykkt | 3 mm |
| Grunnlögun | Kúpt |
| Styrkur | 25 mg |
Notkun á lyfjum
Aukaverkanir
Algengasta aukaverkunin er munnþurrkur, sem allt að 50% þeirra sem taka lyfið finna fyrir. Aukaverkanir lyfsins eru tíðari eftir því sem skammtar eru stærri, eru verstar í upphafi meðferðar en mildast eða hverfa með áframhaldandi notkun.
- Aukin matarlyst, þyngdaraukningLeitið til læknis
- Breytt bragðskynLeitið til læknis
- Brjóstastækkun, mjólkurflæðiLeitið til læknis
- Hitakóf, svitamyndunLeitið til læknis
- HjartsláttarónotLeitið til læknis
- Höfuðverkur, sundl, svimiLeitið til læknis
- Hreyfitruflanir, skjálfti, máltruflanirLeitið til læknis
- Meltingartruflanir, niðurgangurLeitið til læknis
- Munnþurrkur, hægðatregðaLeitið til læknis
- Ógleði, uppköst, lystarleysiLeitið til læknis
- SjóntruflanirLeitið til læknis
- Skapgerðarbreytingar, rugl, svefntruflanirLeitið til læknis
- Suð fyrir eyrumLeitið til læknis
- Truflanir á kynhvöt og kyngetuLeitið til læknis
- ÞvaglátstruflanirLeitið til læknis
- GulaLeitið til læknis
- Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettirLeitið strax til læknis
- KramparLeitið strax til læknis
- Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikarLeitið strax til læknis
Milliverkanir
Náttúrulyfið Jóhannesarjurt getur haft áhrif á virkni lyfsins.
Nánari upplýsingar
Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með gláku eða hækkaðan augnþrýsting
- þú sért með hjartasjúkdóm eða háan blóðþrýsting
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með of- eða vanvirkan skjaldkirtil
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú sért með stækkaðan blöðruhálskirtil eða eigir erfitt með þvaglát
- þú hafir fengið krampa eða sért með flogaveiki
- þú takir einhver önnur lyf
- þú sért með langvarandi hægðatregðu

| A-hlið | B-hlið | |
|---|---|---|
| Litur | Hvítur | Hvítur |
| Áletrun | CI yfir 25 | G |
| Gerð | Tafla |
|---|---|
| Lögun | Hringlaga |
| Deilistrik | Nei |
| Þvermál | 5,5 mm |
| Þykkt | 3 mm |
| Grunnlögun | Kúpt |
| Styrkur | 25 mg |








