Lacosamide Krka

Flogaveikilyf | Verðflokkur: G | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Lacosamíð

Markaðsleyfishafi: Krka | Skráð: 12. mars, 2021

Lacosamide Krka er notað eitt og sér eða með öðrum flogaveikilyfjum hjá fullorðnum, unglingum og börnum 2 ára og eldri til að meðhöndla tiltekna gerð flogaveiki sem einkennist af hlutaflogum, með eða án síðkominna alfloga. Við þessa gerð flogaveiki hafa flogaköstin fyrst aðeins áhrif á annan hluta heilans. Hins vegar geta þau farið seinna yfir stærra svæði í báðum hlutum heilans. Lacosamide Krka er líka notað með öðrum flogaveikilyfjum hjá fullorðnum, unglingum og börnum 4 ára og eldri til að meðhöndla frumkomin þankippaflog (meiriháttar flog, þar með talið meðvitundarleysi) hjá sjúklingum með sjálfvakta flogaveiki (sú tegund flogaveiki sem talið er að eigi sér erfðafræðilegar orsakir).


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Filmuhúðaðar töflur til inntöku.

Venjulegar skammtastærðir:
Lacosamid á að taka tvisvar sinnum á sólarhring, með u.þ.b. 12 klukkutíma millibili. Læknirinn skal ávísa viðeigandi lyfjaformi og styrkleika í samræmi við þyngd og skammt.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Áhrifa lyfsins fer að gæta eftir u.þ.b. vikutíma.

Verkunartími:
Misjafn eftir ástandi sjúklings.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Ef sjúklingur tekur eftir að skammtur gleymdist innan við 6 klst. áður en taka á næsta skammt skal leiðbeina sjúklingi að bíða og taka næsta skammt lacosamids á venjulegum tíma. Sjúklingar skulu ekki taka tvöfaldan skammt.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Sjúkdómseinkenni geta aftur komið fram þegar hætt er að taka lyfið, sérstaklega ef skammtar eru ekki minnkaðir smám saman. Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru stórir skammtar eða vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni strax.

Langtímanotkun:
Takmörkuð reynsla, mönnum virðist ekki hætta búin af langvarandi notkun.


Aukaverkanir

Alvarlegar aukaverkanir eru sjaldgæfar. Algengustu aukaverkanirnar, koma fyrir hjá fleiri en1 af 10 einstaklingum, er höfuðverkur, sundl, ógleði og tvísýni. Fái sjúklingur flogakast, sem tekur lyfið reglulega við flogaveiki, skal hafa samband við lækni strax.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Aukin matarlyst          
Bjúgur          
Breytt húðskyn          
Hjartsláttartruflanir, hraður hjartsláttur        
Hægðatregða, uppköst, vindgangur          
Minnkuð kynhvöt eða getuleysi          
Munnþurrkur          
Mæði        
Ósamhæfðar hreyfingar, skjálfti, tormæli          
Sjóntruflanir          
Skortur á einbeitingu, minnisleysi          
Svefnhöfgi, sundl, svimi, þreyta          
Útbrot, kláði          
Vellíðunartilfinning, rugl, skapstyggð          
Ölvunartilfinning          

Milliverkanir

Lyfið getur aukið áhrif áfengis og róandi lyfja.

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með hjartasjúkdóm
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú sért með sykursýki
  • þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:
Ekki er ráðlagt að taka Lacosamide Krka á meðgöngu.

Brjóstagjöf:
Brjóstagjöf er ekki ráðlögð á meðan Lacosamide Krka er tekið.

Börn:
Hvorki er mælt með notkun Lacosamide Krka fyrir börn yngri en 2 ára með tiltekna gerð af flogaveiki sem einkennist af hlutaflogum né fyrir börn yngri en 4 ára með frumkomin þankippaflog.

Eldra fólk:
Minni skammtar eru oft notaðir.

Akstur:
Lyfið getur skert athygli og viðbragðsflýti og þar með aksturshæfni. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.

Áfengi:
Ekki neyta áfengis meðan lyfið er tekið, áfengi getur aukið sljóvgandi áhrif lyfsins.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.