Latanostad Comp
Lyfseðilsskylt
Latanostad Comp er notað við hækkuðum augnþrýstingi. Hann stafar af ójafnvægi milli framleiðslu augnvökva og frárennslis hans, vökvinn safnast fyrir og þrýstingur í auganu hækkar. Þegar þrýstingurinn hækkar geta æðar til sjónhimnu þrengst og blóðflæði minnkað um þær. Ef ekki er brugðist við í tíma getur það valdið skemmdum í sjónhimnunni og jafnvel blindu. Latanostad Comp inniheldur tvö virk efni, latanóprost og tímólól. Latanóprost eykur frárennsli augnvökva og lækkar þannig augnþrýsting í auganu. Tímólól lækkar hins vegar augnþrýsting með því að draga úr framleiðslu augnvökva. Með því að nota þessi tvö virku efni saman eins og hér er gert má ná fram enn frekari lækkun á augnþrýstingi.
Notkun á lyfjum
Aukaverkanir
- Litabreytingar í lithimnuLeitið til læknis
- Roði og bólga í augum eða augnlokumLeitið til læknis
- Sjóntruflanir, erting í augum, roði í augumLeitið til læknis
- ÚtbrotLeitið til læknis
- Hjartsláttartruflanir, hægur hjartslátturLeitið strax til læknis
- Verkur fyrir brjósti, mæðiLeitið strax til læknis
- Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikarLeitið strax til læknis
Milliverkanir
Ef önnur staðbundin augnlyf eru notuð samtímis, þurfa að líða a.m.k. 5 mín. á milli ídreypinga.
Nánari upplýsingar
Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með hjarta- eða æðasjúkdóm
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með lungnaþembu eða astma
- þú sért með of- eða vanvirkan skjaldkirtil
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú sért með sykursýki
- þú takir einhver önnur lyf
- þú notir augnlinsur








