Lenzetto

Lyfjabokin 05 (1)
Leitaðu í Lyfjabókinni Hér finnur þú öll skráð lyf á Íslandi sem seld eru í apótekum
Kvenhormón

Lyfseðilsskylt

Verðflokkur G: Lyfið er niðurgreitt og fellur inn í greiðsluþrepakerfiðVirkt innihaldsefni: EstradíólSkráð 14. ágúst 2015

Estradíól er hormón sem líkaminn framleiðir. Það er gefið eitt og sér, í hormónameðferð eftir tíðahvörf eða eftir brottnám eggjastokka. Eftir tíðahvörf hætta eggjastokkarnir að framleiða estradíól og prógesterón. Hormónameðferðin miðast að því að vega skortinn upp sem verður og að slá á einkenni sem eru samfara honum. Hormónameðferð eftir tíðahvörf minnkar líkur á beinþynningu þar sem estradíól heldur áfram eðlilegu viðhaldi beina.

Notkun á lyfjum

LyfjaformÚðalausn.
Venjulegar skammtastærðir1-3 úðar einu sinni á dag á innanverðan framhandlegg. Það þarf að leyfa úaðanum að þorna í að minnsta kosti 2 mínútur áður en maður fer í föt og bíða í minnst 60 mínútur áður en svæðið er þvegið.
Hversu langur tími uns verkun kemur framEkki að fullu þekkt.
VerkunartímiEkki að fullu þekktur.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekiðEngin.
GeymslaGeymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá. Notið innan 56 daga frá fyrstu notkun.
Ef skammtur gleymistNotaðu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að nota lyfið eins og venjulega. Ekki nota tvo skammta í einu.
Hvernig á að hætta töku lyfsinsHætta skal uppbótarmeðferð eftir tíðahvörf í samráði við lækni.
Ef tekinn er of stór skammturStakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef stórir skammtar eru notaðir eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.
LangtímanotkunÁn vandkvæða, en ráðlegt er að fara reglulega í skoðun. Nánar ákveðið í samráði við lækni.

Aukaverkanir

Algengar aukaverkanir (>1%):
  • Bjúgur, þyngdaraukning
    Leitið til læknis
  • Eymsli í brjóstum
    Leitið til læknis
  • Höfuðverkur, pirringur
    Leitið til læknis
  • Magaverkir, uppþemba
    Leitið til læknis
  • Óeðlilegar blæðingar
    Leitið til læknis
  • Ógleði og uppköst
    Leitið til læknis
Sjaldgæfar aukaverkanir (<1%):
  • Gula
    Leitið til læknis
  • Háþrýstingur
    Leitið til læknis
  • Ofnæmisviðbrögð í húð
    Leitið til læknis
  • Breytingar í brjóstum
    Leitið strax til læknis
  • Verkur í fótum, nára eða fyrir brjósti
    Leitið strax til læknis

Milliverkanir

Lyf sem auka áhrif lifrarensíma, t.d. sum flogaveikilyf eða sýklalyf, geta dregið úr virkni lyfsins. Jóhannesarjurt og ginseng geta haft áhrif á virkni lyfsins.

Nánari upplýsingar

Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:

  • einhver í ættinni sé með sykursýki, hjarta- eða æðasjúkdóm
  • grunur leiki á um þungun
  • þú sért með astma
  • þú sért með háan blóðþrýsting, hjarta- eða æðasjúkdóm
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með mígreni
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú sért með rauða úlfa (lupus)
  • þú sért með sykursýki
  • þú hafir fengið krampa eða sért með flogaveiki
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú hafir fengið brjóstakrabbamein eða æxli í kynfæri.
  • þú sért með blæðingar frá fæðingarvegi af óþekktum ástæðum
MeðgangaLyfið er aðeins notað eftir tíðahvörf. Hættu að nota Lenzetto ef þú verður þunguð.
BrjóstagjöfLyfið er aðeins notað eftir tíðahvörf. Ekki nota Lenzetto með barn á brjósti.
BörnLyfið er ekki ætlað börnum.
Eldra fólkTakmörkuð reynsla er af meðferð hjá konum sem eru eldri en 65 ára.
AksturLyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.
ÁfengiÍ litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.
ÍþróttirLeyft við æfingar og í keppni.
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem finna má á heimsíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.