Letromal

Lyfjabokin 05 (1)
Leitaðu í Lyfjabókinni Hér finnur þú öll skráð lyf á Íslandi sem seld eru í apótekum
Lyf með verkun á innkirtla

Lyfseðilsskylt

Verðflokkur G: Lyfið er niðurgreitt og fellur inn í greiðsluþrepakerfiðVirkt innihaldsefni: LetrózólSkráð 1. apríl 2011

Femar tilheyrir flokki krabbameinslyfja sem hafa letjandi verkun á ensím í líkamanum. Ensím örva framleiðslu á hinum ýmsu efnum sem líkaminn framleiðir, og þar á meðal estradíól. Virka efnið letrózól dregur úr myndun estradíóls með því að hindra áhrif ensímkerfis sem nefnist arómata ensímsamstæðan. Það eitt að lækka styrk estradíóls í blóði hefur jákvæð áhrif á brjóstakrabbamein. Femar er ætlað konum eftir tíðahvörf.

Tafla 2,5 mg Tafla

Notkun á lyfjum

LyfjaformTöflur til inntöku.
Venjulegar skammtastærðir2,5 mg einu sinni á dag, helst alltaf á sama tíma dags. Töflurnar gleypist heilar með vatnsglasi.
Hversu langur tími uns verkun kemur framEkki að fullu þekkt.
VerkunartímiEkki að fullu þekktur.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekiðEngin.
GeymslaGeymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymistTaktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.
Hvernig á að hætta töku lyfsinsEkki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.
Ef tekinn er of stór skammturHafðu samband við lækni í öllum tilfellum.
LangtímanotkunÁn vandkvæða.

Aukaverkanir

Margar aukaverkanir sem verður vart þegar lyfið er tekið má rekja til undirliggjandi sjúkdóms eða eðlilegra afleiðinga estrógenskorts. Algengustu aukaverkanir lyfsins eru hitakóf, liðverkir, ógleði og þreyta.

Algengar aukaverkanir (>1%):
  • Beinþynning
    Leitið til læknis
  • Bjúgur í útlimum
    Leitið til læknis
  • Hárlos
    Leitið til læknis
  • Háþrýstingur
    Leitið til læknis
  • Hitakóf, aukin svitamyndun
    Leitið til læknis
  • Höfuðverkur, sundl, þreyta
    Leitið til læknis
  • Kólesterólhækkun
    Leitið til læknis
  • Lystarleysi, aukin matarlyst, þyngdaraukning
    Leitið til læknis
  • Meltingartruflanir, hægðatregða og niðurgangur
    Leitið til læknis
  • Ógleði og uppköst
    Leitið til læknis
  • Útbrot
    Leitið til læknis
  • Vanlíðan
    Leitið til læknis
  • Verkir
    Leitið til læknis
  • Þunglyndi
    Leitið til læknis
Sjaldgæfar aukaverkanir (<1%):
  • Blæðing úr leggöngum
    Leitið til læknis
  • Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettir
    Leitið strax til læknis
  • Hjartsláttartruflanir, hraður hjartsláttur
    Leitið strax til læknis
  • Verkur fyrir brjósti, mæði
    Leitið strax til læknis
  • Þvagfærasýkingar
    Leitið strax til læknis
  • Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar
    Leitið strax til læknis
  • Verkur í fótum, nára eða fyrir brjósti
    Leitið strax til læknis

Nánari upplýsingar

Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:

  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú sért með beinþynningu
MeðgangaLyfið má ekki nota á meðgöngu.
BrjóstagjöfLyfið má ekki nota samhliða brjóstagjöf.
BörnLyfið er ekki ætlað börnum.
Eldra fólkVenjulegar skammtastærðir.
AksturLyfið getur valdið þreytu og sundli. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.
ÁfengiÍ litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.
ÍþróttirBannað í og utan keppni.
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem finna má á heimsíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.