Levonorgestrel Norfri (Heilsa)
Lausasölulyf
Levonorgestrel Apofri er neyðargetnaðarvörn sem hægt er að nota eftir samfarir, oft kölluð "daginn eftir pillan". Levónorgestrel er samtengt hormón með sömu áhrif í líkamanum og kvenhormónið prógesterón. Levónorgestrel veldur breytingum á slímhúð legsins og frjóvguð eggfruma nær síður að hreiðra þar um sig. Leghálsslímið þykknar og sáðfrumur eiga erfitt með að komast upp leghálsinn. Lyfið kemur í veg fyrir um 85% væntanlegra þungana og er hún slakari en væri notuð venjuleg getnaðarvarnartafla. Eftir intöku Levonorgestrel getur orðið bið á næstu tíðablæðingu eða hún komið fyrr en venjulega. Levonorgestrel Apofri er aðeins hugsuð í neyðartilvikum og hún er algerlega óviðeigandi sem almenn getnaðarvörn. Lyfið á ekki að nota oftar en einu sinni innan hvers tíðahrings og er eingöngu ætlað konum með reglulegar blæðingar. Konum er ráðlagt að fara í kvenskoðun og í þungunarpróf 3 vikum eftir notkun lyfsins, hvort sem tíðablæðing hefur orðið eða ekki.
Notkun á lyfjum
Aukaverkanir
Meira en 10% kvenna fyrir aukaverkunum af völdum lyfsins.
- BlæðingatruflanirLeitið til læknis
- Eymsli og verkir í brjóstumLeitið til læknis
- Höfuðverkur, svimiLeitið til læknis
- Kviðverkir, niðurgangurLeitið til læknis
- Ógleði og uppköstLeitið til læknis
- ÞreytaLeitið til læknis
- Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikarLeitið strax til læknis
Milliverkanir
Jóhannesarjurt og ginseng geta haft áhrif á virkni lyfsins.
Nánari upplýsingar
Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með bólgusjúkdóm í þörmum
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú sért með sykursýki
- þú takir einhver önnur lyf
- þú hefur sögu um utanlegsfóstur








