Lidokain Viatris

Lyfjabokin 05 (1)
Leitaðu í Lyfjabókinni Hér finnur þú öll skráð lyf á Íslandi sem seld eru í apótekum
Staðdeyfilyf

Lyfseðilsskylt

Verðflokkur 0: Lyfið er ekki niðurgreitt og fellur ekki inn í greiðsluþrepakerfiðVirkt innihaldsefni: LídókaínSkráð 1. apríl 2012

Lidokain Viatris inniheldur virka efnið lídókaín og er staðdeyfandi. Stungulyfið er notað til deyfingar fyrir minni háttar aðgerðir.

Notkun á lyfjum

LyfjaformStungulyf.
Venjulegar skammtastærðirLæknir metur skammtastærðir út frá gerð deyfingar og líkamsástandi sjúklings.
Hversu langur tími uns verkun kemur framStaðdeyfandi verkun lídókaíns kemur fram á nokkrum mín.
VerkunartímiMisjafn eftir magni og staðsetningu deyfingar.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekiðEngin.
GeymslaGeymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymistLyfið er ekki notað að staðaldri.
Hvernig á að hætta töku lyfsinsLyfið er ekki notað að staðaldri.
Ef tekinn er of stór skammturStakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef notaðir eru mjög stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.
LangtímanotkunLídókaín er almennt ekki notað nema í skamman tíma í senn.

Aukaverkanir

Algengar aukaverkanir (>1%):
  • Hægur hjartsláttur, breyting á blóðþrýstingi
    Leitið til læknis
  • Ógleði, uppköst, sundl
    Leitið til læknis
Sjaldgæfar aukaverkanir (<1%):
  • Hjartsláttartruflanir, hjartastopp
    Leitið strax til læknis
  • Meðvitundarleysi og krampar
    Leitið strax til læknis
  • Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar
    Leitið strax til læknis
Aukaverkanir með óþekkta tíðni:
  • Hlaup, smyrsli og úðalyf:
  • Stungulyf:

Nánari upplýsingar

Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:

  • grunur leiki á um þungun
  • þú sért með hjartasjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú sért með skerta lifrar- eða nýrnastarfsemi
  • þú takir einhver önnur lyf
MeðgangaEngin þekkt áhætta er af notkun lyfsins á meðgöngu. Ekki nota nein lyf á fyrstu 3 mánuðum meðgöngu nema í samráði við lækni.
BrjóstagjöfLyfið berst í brjóstamjólk en í venjulegum skömmtum er ólíklegt að það hafi áhrif á barnið.
BörnSkammtar eru háðir gerð deyfingar og líkamsástandi.
Eldra fólkSkammtar eru háðir gerð deyfingar og líkamsástandi.
AksturLyfið getur skert hreyfigetu og samhæfni tímabundið.
ÁfengiÍ litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.
ÍþróttirLeyft við æfingar og í keppni.
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem finna má á heimsíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.