Locoid Lipid

Barksterar húðlyf | Verðflokkur: G | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Hýdrókortisón bútýrat

Markaðsleyfishafi: Astellas Pharma | Skráð: 1. júlí, 1986

Locoid Lipid inniheldur hýdrókortisón en það er sterahormón sem myndast í nýrnahettunum undir eðlilegum kringumstæðum. Hýdrókortisón bútýrat er eingöngu notað útvortis við exemi, bólgum, kláða, psoríasis og ofnæmiseinkennum. Hýdrókortisón bælir myndun efna sem framkalla bólgur og virkja ónæmiskerfið. Sterar sem eru notaðir í húðlyf skiptast gróflega í 4 flokka eftir styrkleika. Hýdrókortisón er vægur steri og tilheyrir flokki 1, veikasta flokknum, en hýdrókortisón bútýrat hefur meiri áhrif og er í flokki 2.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Útvortis krem.

Venjulegar skammtastærðir:
Borið á í þunnu lagi 1-3svar á dag.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Misjafnt eftir ástandi sjúklings.

Verkunartími:
Misjafnt eftir ástandi sjúklings.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Notaðu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að nota lyfið eins og venjulega. Ekki nota tvo skammta í einu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Lyfið er venjulega aðeins notað þangað til einkenni hafa minnkað eða eru horfin.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda.

Langtímanotkun:
Meiri hætta er á að aukaverkanir lyfsins komi fram. Hýdrókortisón bútýrat getur valdið húðþynningu þegar það er notað lengi útvortis.


Aukaverkanir

Aukaverkanir eru sjaldgæfar, sérstaklega þegar lyfið er aðeins notað í skamman tíma. Við meðhöndlun á stórum húðsvæðum geta almenn áhrif barkstera komið fram. Afleiðingarnar geta verið kringluleitara andlitslag, beinþynning og hömlun á vexti. Þetta er hins vegar mjög sjaldgæft.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Almenn steraáhrif        
Húðþynning          
Sýking í húð          
Útbrot og mikill kláði          

Milliverkanir

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:
Nokkur hætta er á því að lyfið hafi áhrif á fóstur.

Brjóstagjöf:
Ekki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk.

Börn:
Venjulegar skammtastærðir. Gæta skal varúðar við notkun lyfsins.

Eldra fólk:
Venjulegar skammtastærðir.

Akstur:
Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.

Áfengi:
Áfengi hefur ekki áhrif á verkun lyfsins.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.