Losartankalium Krka

Lyfjabokin 05 (1)
Leitaðu í Lyfjabókinni Hér finnur þú öll skráð lyf á Íslandi sem seld eru í apótekum
Lyf með verkun á renínangíótensín-kerfið

Lyfseðilsskylt

Verðflokkur G/0: Lyfið er niðurgreitt og fellur inn í greiðsluþrepakerfiðVirkt innihaldsefni: LósartanSkráð 28. mars 2023

Lyfið sem inniheldur virka efnið lósartan, er hjartalyf. Það hindrar áhrif angíótensíns II, eins öflugasta æðaþrengjandi efnis í líkamanum. Auk æðaþrengjandi áhrifa minnkar angíótensín II vatnsútskilnað í nýrum, eykur rúmmál blóðs og stuðlar frekar að því að blóðþrýstingur hækkar. Lósartan lækkar blóðþrýsting með því að víkka út æðar og skilja vatn út úr líkamanum. Lyfið er notað við háþrýstingi, til að minnka líkur á hjarta- og æðasjúkdómum, við hjartabilun og getur einnig dregið úr nýrnaskemmdum hjá sjúklingum með sykursýki. Þegar þörf er á mikilli lækkun blóðþrýstings er lyfið gefið með þvagræsilyfjum eins og t.d. hýdróklórtíazíði. Lósartan veldur færri aukaverkunum en þau lyf sem hindra myndun á angíótensín II, og þolist yfirleitt betur en þau.

Tafla 12,5 mg Filmuhúðuð tafla

Notkun á lyfjum

LyfjaformTöflur til inntöku.
Venjulegar skammtastærðir12,5-100 mg í senn einu sinni á dag. Töflurnar gleypist með vatnsglasi.
Hversu langur tími uns verkun kemur framHámarksverkun næst á 3-6 vikum.
VerkunartímiA.m.k. 24 klst.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekiðEngin.
GeymslaGeymist í lokuðum umbúðum við eða undir stofuhita, varið ljósi, þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymistTaktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.
Hvernig á að hætta töku lyfsinsEinkenni sjúkdóms geta versnað þegar töku lyfsins er hætt. Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.
Ef tekinn er of stór skammturStakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.
LangtímanotkunÁn vandkvæða.

Aukaverkanir

Algengasta aukaverkun lyfsins er svimi og kemur fyrir hjá um 2% þeirra sem taka lyfið. Almennt eru aukaverkanir lyfsins vægar og ganga yfir þegar líður á meðferðina.

Algengar aukaverkanir (>1%):
  • Lágur blóðþrýstingur
    Leitið til læknis
  • Sundl, svimi
    Leitið til læknis
  • Þreyta, máttleysi
    Leitið til læknis
Sjaldgæfar aukaverkanir (<1%):
  • Gula
    Leitið til læknis
  • Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettir
    Leitið strax til læknis
  • Hjartsláttartruflanir, hraður hjartsláttur
    Leitið strax til læknis
  • Verkur fyrir brjósti
    Leitið strax til læknis
  • Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar
    Leitið strax til læknis

Milliverkanir

Önnur blóðþrýstingslækkandi lyf geta aukið blóðþrýstingslækkandi áhrif lósartans.

Nánari upplýsingar

Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:

  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú hafir nýlega fengið mikinn niðurgang eða uppköst
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú hafir sögu um ofsabjúg
MeðgangaLyfið eykur líkur á fósturskaða sé það notað á meðgöngu.
BrjóstagjöfEkki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk.
BörnMinni skammtar. Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 6 ára.
Eldra fólkAuknar líkur eru á aukaverkunum. Minni skammtar eru oft notaðir.
AksturLyfið getur valdið svima og þar með haft áhrif á aksturshæfni. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.
ÁfengiÁfengi getur haft óæskileg áhrif á blóðþrýsting og hjartsláttarhraða, og aukið líkur á aukaverkunum lyfsins. Ekki er æskilegt að neyta áfengis meðan lyfið er tekið.
ÍþróttirLeyft við æfingar og í keppni.
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem finna má á heimsíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.