Lyngonia
Þvagfæralyf | Verðflokkur: 0 | Lausasölulyf
Virkt innihaldsefni: Sortulyngslaufsútdráttur
Markaðsleyfishafi: Florealis ehf. | Skráð: 1. nóvember, 2017
Lyngonia er jurtalyf sem hefð er fyrir, notað til að draga úr einkennum vægrar, endurtekinnar sýkingar í neðri hluta þvagfæra, svo sem brunatilfinningu við þvaglát og/eða auknum þvaglátum hjá konum, eftir að alvarleg veikindi hafa verið útilokuð af lækni. Þetta lyf er jurtalyf sem hefð er fyrir og tilgreinda ábendingin fyrir notkun þess er eingöngu byggð á langri sögu um notkun lyfsins.
Notkun á lyfi
Lyfjaform:
Töflur til inntöku
Venjulegar skammtastærðir:
2 töflur 2-4sinnum á sólarhring.
Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Áhrif ættu að koma fram innan 2-4 daga.
Verkunartími:
Óþekkt
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin þekkt áhrif.
Geymsla:
Geymið lyfið þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymist:
Ekki á að tvöfalda skammt til að bæta upp skammt sem gleymst hefur að taka. Takið næsta skammt eins og venjulega.
Ef tekinn er of stór skammtur:
Ef of stór skammtur af jurtalyfinu hefur verið notaður, eða ef barn hefur í ógáti tekið inn jurtalyfið skal hafa samband við lækni, sjúkrahús eða læknavakt. Jafnframt er hægt að hringja í eftirfarandi símanúmer: Eitrunarmiðstöð (sími 543 2222).
Langtímanotkun:
Notið ekki lengur en í eina viku. Ef einkenni eru viðvarandi í meira en 4 daga eða versna við notkun jurtalyfsins skal leita ráðlegginga læknis eða heilbrigðisstarfsmanns.
Aukaverkanir
Óþægindi í meltingarvegi (eins og ógleði, magaverkir og uppköst) hafa verið tilkynnt. Tíðni aukaverkanna er ekki þekkt.
Milliverkanir
Ekki hefur verið greint frá áhrifum af því að nota þetta jurtalyf samhliða öðrum lyfjum. Þegar þú ferð til læknis eða annars heilbrigðisstarfsmanns, mundu eftir að segja honum/henni frá því að þú sért að taka eða hafir nýlega tekið Lyngonia.
Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á
Má ekki nota með
Getur haft áhrif á
Varúð
Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- þú sért með nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
Meðganga:
Ekki er ráðlagt að nota þetta jurtalyf meðan á þungun stendur vegna þess að öryggi þess hefur ekki verið staðfest.
Brjóstagjöf:
Ekki er ráðlagt að nota þetta jurtalyf meðan á brjóstagjöf stendur vegna þess að öryggi þess hefur ekki verið staðfest.
Börn:
Ekki ætlað börnum yngri en 18 ára
Akstur:
Engin eða óveruleg áhrif á hæfni til aksturs og notkunar véla.
Áfengi:
Engin þekkt áhrif
Annað:
Karlmönnum er ráðlagt að nota ekki Lyngonia. Ráðlagt er að hafa samband við lækni til greiningar og meðhöndlunar. Jurtalyfið getur valdið græn-brúnleitum lit á þvagi.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.