LyfjaformForðahylki til inntöku.
Venjulegar skammtastærðir125-250 mg í senn 3-4 sinnum á dag. Takist 30 mín. fyrir máltíð eða 1 klst. eftir máltíð með vatnsglasi. Forðahylkin gleypist heil. Má ekki tyggja þau.
Hversu langur tími uns verkun kemur framInnan við 1 klst. en getur verið lengri tími eftir töku forðahylkja.
Verkunartími2-12 klst.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekiðEngin.
GeymslaGeymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymistTaktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef færri en 2 klst. eru til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.
Hvernig á að hætta töku lyfsinsEkki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni, annars er hætta á því að sjúkdómurinn versni. Ef töku lyfsins er hætt skyndilega getur það valdið mjög alvarlegum einkennum.
Ef tekinn er of stór skammtur
Ef of stór skammtur af lyfinu hefur verið notaður, eða ef barn hefur í ógáti tekið inn lyfið skal hafa samband við lækni, sjúkrahús eða eitrunarmiðstöð (sími 543 2222). Hafið umbúðir lyfsins við höndina.
LangtímanotkunAukaverkanir lyfsins, svo sem ósjálfráðar hreyfingar, hreyfitregða og breytingar á andlegri líðan, getur komið fram við langtímanotkun. Þessar aukaverkanir má yfirleitt koma í veg fyrir eða gera þolanlegar með því að minnka skammta af levódópa.