Magnesia DAK

Lyfjabokin 05 (1)
Leitaðu í Lyfjabókinni Hér finnur þú öll skráð lyf á Íslandi sem seld eru í apótekum
Sýrubindandi lyf

Lausasölulyf

Verðflokkur 0: Lyfið er ekki niðurgreitt og fellur ekki inn í greiðsluþrepakerfiðVirkt innihaldsefni: MagnesíumhýdroxíðSkráð 1. janúar 2026

Magnesíumhýdroxíð tilheyrir flokki hægðalyfja sem eru sölt. Hægðalosandi virkni lyfsins felst í því að magnesíumhýdroxíð bindur vatn í þörmunum þannig að hægðirnar verða þynnri og þarmarnir þenjast út og örva þannig þarmahreyfingar. Magnesíumhýdroxíð binst einnig magasýrum eftir inntöku og minnkar þannig virkni þeirra og er því einnig notað við ofmyndun magasýru en hún veldur magaóþægindum, brjóstsviða og nábít. Of mikil myndun magasýru í langan tíma getur leitt til sáramyndunar í vélinda, maga og skeifugörn.

Tafla 500 mg Filmuhúðuð tafla

Notkun á lyfjum

LyfjaformTöflur til inntöku.
Venjulegar skammtastærðirVið hægðatregðu: 1000-1500 mg eftir þörfum. Sýrubindandi: 500-1000 mg eftir þörfum.
Hversu langur tími uns verkun kemur framVið hægðatregðu eru það 6-8 klst.
Verkunartími6-8 klst.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekiðEngin.
GeymslaGeymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymistTaktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.
Hvernig á að hætta töku lyfsinsEf lyfið er tekið við tilfallandi einkennum má hætta töku þess þegar einkennin eru ekki lengur til staðar.
Ef tekinn er of stór skammturStakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru mjög stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.
LangtímanotkunGetur haft áhrif á magn kalks og fosfórs í líkamanum. Ekki skal nota lyfið í langan tíma nema í samráði við lækni.

Aukaverkanir

1-5% sjúklinga sem nota lyfið fá aukaverkanir, oftast meltingaróþægindi.

Algengar aukaverkanir (>1%):
  • Höfuðverkur
    Leitið til læknis
  • Kviðverkir, niðurgangur, vindgangur
    Leitið til læknis
  • Ógleði, uppköst, vanlíðan
    Leitið til læknis
Sjaldgæfar aukaverkanir (<1%):
  • Hjartabilun
    Leitið strax til læknis
  • Sljóleiki, vöðvamáttleysi
    Leitið strax til læknis

Milliverkanir

Magnesia medic getur dulið einkenni blæðinga í meltingarvegi (kviðverkir) sem eru afleiðing meðferðar með bólgueyðandi lyfjum og gigtarlyfjum.

Nánari upplýsingar

Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:

  • grunur leiki á um þungun
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú sért með skerta nýrnastarfsemi
  • þú takir einhver önnur lyf
MeðgangaLyfið má taka á meðgöngu. Engin þekkt áhætta er af notkun lyfsins á meðgöngu. Ekki taka nein lyf á fyrstu 3 mánuðum meðgöngu nema í samráði við lækni.
BrjóstagjöfLyfið má taka með barn á brjósti. Lyfið berst í brjóstamjólk en í venjulegum skömmtum er ólíklegt að það hafi áhrif á barnið.
BörnLyfið er ekki ætlað börnum yngri en 15 ára nema í samráði við lækni.
Eldra fólkVenjulegar skammtastærðir nema ef um skerta nýrnastarfsemi sé að ræða, þá eru minni skammtar notaðir.
AksturLyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.
ÁfengiGetur ert magaslímhúð. Æskilegt er að halda áfengisneyslu í lágmarki meðan lyfið er tekið.
ÍþróttirLeyft við æfingar og í keppni.
AnnaðTil að lyfið verki sem best gegn hægðatregðu er mikilvægt að drekka mikinn vökva.
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem finna má á heimsíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.