Melatonin Bluefish

Lyfjabokin 05 (1)
Leitaðu í Lyfjabókinni Hér finnur þú öll skráð lyf á Íslandi sem seld eru í apótekum
Svefnlyf og róandi lyf

Lyfseðilsskylt

Verðflokkur 0: Lyfið er ekki niðurgreitt og fellur ekki inn í greiðsluþrepakerfiðVirkt innihaldsefni: MelatónínSkráð 28. desember 2023

Melatonin Bluefish inniheldur virka efnið melatónín sem tilheyrir flokki náttúrulegra hormóna sem líkaminn framleiðir. Melatónín myndast í heilaköngli. Áhrif þess eykst þegar dimmt er orðið og nær hámarki um miðja nótt, eða um kl. 2-4 eftir miðnætti og minnkar svo þegar birta tekur. Þannig tekur melatónín þátt í því að stilla okkar eðlislægu klukku sem veldur því að okkur syfjar á kvöldin og við erum vakandi á daginn. Með aldrinum minnkar framleiðsla á melatóníni. Melatónín getur bætt svefngæði, stytt biðtíma eftir svefni og dregið úr fjölda vöknunartilvika, líkt og önnur svefnlyf. Melatonin Bluefish er notað eitt sér til skamms tíma við frumkomnu svefnleysi (þrálátum erfiðleikum við að sofna, halda svefni eða við litlum svefngæðum) hjá sjúklingum á aldrinum 55 ára og eldri. „Frumkomið“ þýðir að svefnleysið er af óþekktum orsökum, engir þekktir læknisfræðilegir þættir, geðrænir þættir eða umhverfisþættir valda því.

Tafla 2 mg Forðatafla

Notkun á lyfjum

LyfjaformForðatöflur til inntöku.
Venjulegar skammtastærðirRáðlagður skammtur er 2 mg einu sinni á dag, 1-2 klst. fyrir háttatíma og eftir mat. Halda má áfram með þann skammt í allt að þrettán vikur.
Hversu langur tími uns verkun kemur fram1-2 klst.
VerkunartímiEkki að fullu þekktur.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekiðEngin.
GeymslaGeymið við stofuhita í upprunalegum umbúðum til varnar gegn ljósi.
Ef skammtur gleymistEf þú sofnar án þess að taka lyfið skaltu sleppa skammti.
Hvernig á að hætta töku lyfsinsHætta má töku lyfsins þegar ekki er lengur þörf fyrir það.
Ef tekinn er of stór skammturStakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að valda óþægindum. Stórir skammtar geta valdið svefndrunga. Hafið samband við lækni ef stórir skammtar hafa verið teknir.
LangtímanotkunLyfið er ekki ætlað til langtímanotkunar.

Aukaverkanir

Eins og við á um öll lyf getur þetta lyf valdið aukaverkunum en það gerist þó ekki hjá öllum.

Sjaldgæfar aukaverkanir (<1%):
  • Hár blóðþrýstingur
    Leitið til læknis
  • Höfuðverkur, mígreni
    Leitið til læknis
  • Slappleiki
    Leitið til læknis
  • Verkir í útlimum
    Leitið til læknis
  • Brjóstverkur
    Leitið strax til læknis

Milliverkanir

Sígarettureykingar geta minnkað styrk melatóníns.

Nánari upplýsingar

Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:

  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
  • þú sért með skerta lifrar- eða nýrnastarfsemi
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú sért með sjálfsnæmissjúkdóm
MeðgangaTakmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum. Notkun Melatonin Bluefish er ekki ráðlögð á meðgöngu.
BrjóstagjöfTalið er að lyfið geti borist í brjóstamjólk. Konur með barn á brjósti eiga því ekki að nota lyfið.
BörnLyfið er ekki ætlað börnum yngri en 18 ára.
Eldra fólkVenjulegar skammtastærðir.
AksturLyfið getur valdið svefndrunga. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.
ÁfengiEkki neyta áfengis á meðan lyfið er tekið þar sem áfengi dregur úr virkni lyfsins á svefn.
ÍþróttirLeyft við æfingar og í keppni.
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem finna má á heimsíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.