Melatonin Viatris
Lyfseðilsskylt
Melatonin Viatris er svefnlyf sem inniheldur virka innihaldsefnið melatónín og er það ætlað fólki 55 ára og eldra sem þjáist af svefnleysi sem einkennist af litlum svefngæðum. Melatónín er hormón sem myndast í heilaköngli. Áhrif þess eykst þegar dimmt er orðið og nær hámarki um miðja nótt, eða um kl. 2-4 eftir miðnætti og minnkar svo þegar birta tekur. Þannig tekur melatónín þátt í því að stilla okkar eðlislægu klukku sem veldur því að okkur syfjar á kvöldin og við erum vakandi á daginn. Með aldrinum minnkar framleiðsla á melatóníni. Melatónín getur bætt svefngæði, stytt biðtíma eftir svefni og dregið úr fjölda vöknunartilvika, líkt og önnur svefnlyf.

| A-hlið | B-hlið | |
|---|---|---|
| Litur | Hvítur | Hvítur |
| Gerð | Forðatafla |
|---|---|
| Lögun | Hringlaga |
| Deilistrik | Nei |
| Þvermál | 8 mm |
| Grunnlögun | Kúpt |
| Styrkur | 2 mg |
Notkun á lyfjum
Aukaverkanir
Eins og við á um öll lyf getur þetta lyf valdið aukaverkunum en það gerist þó ekki hjá öllum.
- BrjóstverkurLeitið til læknis
- Marblettir, óeðlilegar blæðingarLeitið til læknis
- SjóntruflanirLeitið til læknis
- SvimiLeitið til læknis
- ÞunglyndiLeitið til læknis
Milliverkanir
Sígarettureykingar geta minnkað styrk melatóníns.
Nánari upplýsingar
Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
- þú sért með skerta lifrar- eða nýrnastarfsemi
- þú takir einhver önnur lyf
- þú sért með sjálfsnæmissjúkdóm

| A-hlið | B-hlið | |
|---|---|---|
| Litur | Hvítur | Hvítur |
| Gerð | Forðatafla |
|---|---|
| Lögun | Hringlaga |
| Deilistrik | Nei |
| Þvermál | 8 mm |
| Grunnlögun | Kúpt |
| Styrkur | 2 mg |








