Melatonin Vitabalans (Heilsa)
Lyfseðilsskylt
Melatonin Vitabalans er svefnlyf sem inniheldur virka innihaldsefnið melatónín. Lyfið er notað sem skammtímameðferð við flugþreytu vegna ferðalags yfir nokkur tímabelti. Melatónín er hormón sem líkaminn myndar í heilaköngli. Áhrif þess eykst þegar dimmt er orðið og nær hámarki um miðja nótt, eða um kl. 2-4 eftir miðnætti og minnkar svo þegar birta tekur. Þannig tekur melatónín þátt í því að stilla okkar eðlislægu klukku sem veldur því að okkur syfjar á kvöldin og við erum vakandi á daginn. Með aldrinum minnkar framleiðsla á melatóníni. Melatónín getur bætt svefngæði, stytt biðtíma eftir svefni og dregið úr fjölda vöknunartilvika.
Notkun á lyfjum
Aukaverkanir
Aukaverkanir lyfsins eru sjaldgæfar. Mögulegar aukaverkanir í tengslum við skammtíma notkun við flugþreytu eru höfuðverkur, ógleði, lystarleysi, sundl, dagsyfja og vistarfirring (að vera illa áttaður).
- GulaLeitið til læknis
- Höfuðverkur, bakverkurLeitið til læknis
- Meltingartruflanir, ógleði, kviðverkirLeitið til læknis
- ÞróttleysiLeitið til læknis
- Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettirLeitið strax til læknis
- Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikarLeitið strax til læknis
Milliverkanir
Sígarettureykingar geta minnkað styrk melatóníns.
Nánari upplýsingar
Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
- þú sért með skerta lifrar- eða nýrnastarfsemi
- þú takir einhver önnur lyf
- þú sért með sjálfsnæmissjúkdóm








