Mercilon
Lyfseðilsskylt
Mercilon er getnaðarvarnarlyf. Það flokkast sem einfasa, samsett, lágskammta getnaðarvarnarlyf og inniheldur tvö virk efni (hormón), desógestrel og etinýlestradíól. Desógestrel er samtengt hormón sem hefur sömu áhrif í líkamanum og kvenhormónið prógesterón. Desógestrel er mun sértækara en önnur prógesterónlík efni sem notuð eru í getnaðarvarnartöflur. Etinýlestradíól hefur sömu áhrif og kvenhormónið estradíól, verkunartími þess er þó lengri þegar það er tekið inn. Allar töflurnar innihalda sama magn af hormónum. Getnaðarvörn lyfsins felst fyrst og fremst í því að koma í veg fyrir egglos. Jafnframt þessu hafa hormónin áhrif á slímmyndun í leghálsinum með þeim afleiðingum að sæðisfrumur komast síður upp í legið og erfitt er fyrir frjóvgað egg að festast í slímhúð legsins.

| A-hlið | B-hlið | |
|---|---|---|
| Litur | Hvítur | Hvítur |
| Áletrun | ORGANON | TR yfir 4 |
| Gerð | Tafla |
|---|---|
| Lögun | Hringlaga |
| Deilistrik | Nei |
| Þvermál | 6 mm |
| Þykkt | 2,5 mm |
| Grunnlögun | Kúpt |
Notkun á lyfjum
Aukaverkanir
Fyrstu mánuðina finna margar konur (10-30%) fyrir einkennum eins og spennu í brjóstum, ógleði og smáblæðingum. Þessar aukaverkanir hverfa yfirleitt á 2-4 mánuðum.
- Breytingar á kynhvötLeitið til læknis
- Höfuðverkur, ógleðiLeitið til læknis
- SmáblæðingarLeitið til læknis
- Spenna í brjóstumLeitið til læknis
- Þunglyndi, skapsveiflurLeitið til læknis
- Þyngdarbreyting, bjúgurLeitið til læknis
- Bólga eða verkir í fótum eða nára, verkur fyrir brjóstiLeitið strax til læknis
- Gula, mjög mikill kláðiLeitið strax til læknis
- Mæði, mjög mikill höfuðverkur, sjóntruflanirLeitið strax til læknis
Milliverkanir
Jóhannesarjurt og ginseng geta haft áhrif á virkni lyfsins. Auk þess geta getnaðarvarnartöflur minnkað sykurþol og aukið þörf sykursjúkra einstaklinga fyrir insúlín eða önnur sykursýkislyf.
Nánari upplýsingar
Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:
- einhver í ættinni sé með sykursýki, hjarta- eða æðasjúkdóm
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með bólgusjúkdóm í þörmum
- þú sért með háan blóðþrýsting, hjarta- eða æðasjúkdóm
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með mígreni
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú sért með rauða úlfa (lupus)
- þú sért með sykursýki
- þú hafir fengið krampa eða sért með flogaveiki
- þú reykir
- þú takir einhver önnur lyf
- þú sért með eða hefur fengið brisbólgu
- þú sért með blæðingar frá fæðingarvegi af óþekktum ástæðum

| A-hlið | B-hlið | |
|---|---|---|
| Litur | Hvítur | Hvítur |
| Áletrun | ORGANON | TR yfir 4 |
| Gerð | Tafla |
|---|---|
| Lögun | Hringlaga |
| Deilistrik | Nei |
| Þvermál | 6 mm |
| Þykkt | 2,5 mm |
| Grunnlögun | Kúpt |








