Metformin EQL
Lyfseðilsskylt
Metformin EQL, sem inniheldur virka efnið metformín, er við sykursýki. Sykursýki stafar af skorti á insúlíni (tegund I, insúlínháð sykursýki) eða minnkuðum áhrifum þess (tegund II, insúlínóháð sykursýki). Insúlín er hormón sem myndast í briskirtli og er nauðsynlegt til þess að sykur í blóði komist inn í frumur þar sem hann nýtist sem orkugjafi. Metformín er notað við sykursýki af tegund II, en hefur ekki áhrif á insúlínháða sykursýki. Það er aðeins notað ef breytt mataræði hefur ekki haft áhrif á gang sjúkdómsins. Verkunarmáti metformíns er ekki að fullu þekktur en það eykur áhrif insúlíns á vefi líkamans, minnkar sykurnýmyndun í lifur og upptöku sykurs úr þörmum. Í venjulegum skömmtum sjást áhrif þess á blóðsykur, en aðeins hjá sykursjúkum og ekki heilbrigðum. Þar sem lyfið eykur ekki framleiðslu insúlíns er lítil hætta á því að blóðsykur lækki, en of mikil lækkun hans getur haft alvarlegar afleiðingar í för með sér. Of mikil lækkun á blóðsykri getur orðið ef lítillar fæðu er neytt, eftir mikla áreynslu eða ef önnur blóðsykurslækkandi lyf eru tekin samtímis metformíni. Ein af aukaverkunum metformíns er að draga úr matarlyst, sem er æskilegt í þeim tilfellum þegar sjúklingar eru of þungir. Blóðfita og kólesteról í blóði getur líka minnkað þegar metformín er tekið og kemur sér líka vel fyrir þennan sjúklingahóp.

| A-hlið | B-hlið | |
|---|---|---|
| Litur | Hvítur | Hvítur |
| Áletrun | 500 |
| Gerð | Filmuhúðuð tafla |
|---|---|
| Lögun | Hringlaga |
| Deilistrik | Nei |
| Þvermál | 11 mm |
| Styrkur | 500 mg |
Notkun á lyfjum
Aukaverkanir
Algengustu aukaverkanir lyfsins eru óþægindi frá meltingarvegi. Í flestum tilfellum eru þessar aukaverkanir verstar í upphafi meðferðar en mildast með tímanum. Ef meðferð er hafin með litlum skömmtum, sem eru smám saman auknir, og lyfið er tekið með mat þolist það betur. Sjaldgæft er að hætta þurfi notkun lyfsins vegna aukaverkana.
- Breyting á bragðskyniLeitið til læknis
- Kviðverkir, niðurgangurLeitið til læknis
- LystarleysiLeitið til læknis
- Ógleði og uppköstLeitið til læknis
- Truflun á bragðskyniLeitið til læknis
- B12 vítamínskorturLeitið til læknis
- Kuldahrollur, mikil ógleði eða uppköst, hröð öndunLeitið strax til læknis
- Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikarLeitið strax til læknis
Milliverkanir
Sykurbarksterar (sum húðlyf og bólgueyðandi lyf), beta-2 agonistar (sum astmalyf) og þvagræsilyf hafa sykurhækkandi verkun. Láttu vita að þú sért á þessu lyfi ef þú þarft að fara geislarannsókn með joðuðu skuggaefni. Náttúrulyfið Jóhannesarjurt getur haft áhrif á virkni lyfsins.
Nánari upplýsingar
Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú hafir fengið hjartabilun
- þú neytir áfengis í miklum mæli
- þú takir einhver önnur lyf
- þú sért með alvarlega sýkingu

| A-hlið | B-hlið | |
|---|---|---|
| Litur | Hvítur | Hvítur |
| Áletrun | 500 |
| Gerð | Filmuhúðuð tafla |
|---|---|
| Lögun | Hringlaga |
| Deilistrik | Nei |
| Þvermál | 11 mm |
| Styrkur | 500 mg |








