Metformin Teva B.V.

Lyfjabokin 05 (1)
Leitaðu í Lyfjabókinni Hér finnur þú öll skráð lyf á Íslandi sem seld eru í apótekum
Sykursýkilyf

Lyfseðilsskylt

Verðflokkur G: Lyfið er niðurgreitt og fellur inn í greiðsluþrepakerfiðVirkt innihaldsefni: MetformínSkráð 20. janúar 2023

Metformin Teva, sem inniheldur virka efnið metformín, er við sykursýki. Sykursýki stafar af skorti á insúlíni (tegund I, insúlínháð sykursýki) eða minnkuðum áhrifum þess (tegund II, insúlínóháð sykursýki). Insúlín er hormón sem myndast í briskirtli og er nauðsynlegt til þess að sykur í blóði komist inn í frumur þar sem hann nýtist sem orkugjafi. Metformín er notað við sykursýki af tegund II, en hefur ekki áhrif á insúlínháða sykursýki. Það er aðeins notað ef breytt mataræði hefur ekki haft áhrif á gang sjúkdómsins. Verkunarmáti metformíns er ekki að fullu þekktur en það eykur áhrif insúlíns á vefi líkamans, minnkar sykurnýmyndun í lifur og upptöku sykurs úr þörmum. Í venjulegum skömmtum sjást áhrif þess á blóðsykur, en aðeins hjá sykursjúkum og ekki heilbrigðum. Þar sem lyfið eykur ekki framleiðslu insúlíns er lítil hætta á því að blóðsykur lækki, en of mikil lækkun hans getur haft alvarlegar afleiðingar í för með sér. Of mikil lækkun á blóðsykri getur orðið ef lítillar fæðu er neytt, eftir mikla áreynslu eða ef önnur blóðsykurslækkandi lyf eru tekin samtímis metformíni. Ein af aukaverkunum metformíns er að draga úr matarlyst, sem er æskilegt í þeim tilfellum þegar sjúklingar eru of þungir. Blóðfita og kólesteról í blóði getur líka minnkað þegar metformín er tekið og kemur sér líka vel fyrir þennan sjúklingahóp.

Tafla 500 mg Filmuhúðuð tafla

Notkun á lyfjum

LyfjaformTöflur til inntöku.
Venjulegar skammtastærðir500-1000 mg í senn 2-3svar á dag. Takist með eða rétt eftir máltíð. Töflurnar gleypist heilar með vatnsglasi. Má hvorki tyggja þær né mylja.
Hversu langur tími uns verkun kemur framInnan við 1 klst. 2 vikur geta liðið þar til náðst hefur stjórn á sykursýkinni.
Verkunartími8-12 klst.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekiðBreytt mataræði og minnkuð sykurneysla er þáttur í meðferð.
GeymslaGeymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymistTaktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.
Hvernig á að hætta töku lyfsinsSykursýki getur versnað þegar töku lyfsins er hætt. Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.
Ef tekinn er of stór skammturHafðu samband við lækni í öllum tilfellum. Ef sjúklingur missir meðvitund skal leita neyðarhjálpar.
LangtímanotkunFylgjast þarf með magni B<sub>12</sub>-vítamíns í blóði árlega þar sem lyfið getur dregið úr nýtingu þess úr fæðu. Vegna sykursýkinnar er einnig æskilegast að fylgjast reglulega með sykri í blóði eða þvagi. Einnig getur þurft að fylgjast með sjón og lifrar-, nýrna- og hjartastarfsemi. Láttu lækni og tannlækni vita að þú takir lyfið fyrir aðgerð.

Aukaverkanir

Algengustu aukaverkanir lyfsins eru óþægindi frá meltingarvegi. Í flestum tilfellum eru þessar aukaverkanir verstar í upphafi meðferðar en mildast með tímanum. Ef meðferð er hafin með litlum skömmtum, sem eru smám saman auknir, og lyfið er tekið með mat þolist það betur. Sjaldgæft er að hætta þurfi notkun lyfsins vegna aukaverkana.

Algengar aukaverkanir (>1%):
  • Kviðverkir, niðurgangur
    Leitið til læknis
  • Lystarleysi
    Leitið til læknis
  • Ógleði og uppköst
    Leitið til læknis
  • Truflun á bragðskyni
    Leitið til læknis
Sjaldgæfar aukaverkanir (<1%):
  • Útbrot, kláði
    Leitið til læknis
  • Kuldahrollur, mikil ógleði eða uppköst, hröð öndun
    Leitið strax til læknis

Milliverkanir

Sykurbarksterar (sum húðlyf og bólgueyðandi lyf), beta-2 agonistar (sum astmalyf) og þvagræsilyf hafa sykurhækkandi verkun. Láttu vita að þú sért á þessu lyfi ef þú þarft að fara geislarannsókn með joðuðu skuggaefni. Náttúrulyfið Jóhannesarjurt getur haft áhrif á virkni lyfsins.

Nánari upplýsingar

Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:

  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú hafir fengið hjartabilun
  • þú neytir áfengis í miklum mæli
  • þú takir einhver önnur lyf
MeðgangaTakmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum.
BrjóstagjöfLyfið berst í brjóstamjólk.
BörnLyfið er ekki ætlað börnum yngri en 10 ára.
Eldra fólkAuknar líkur eru á aukaverkunum. Minni skammtar eru notaðir.
AksturLyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni en ef merki eru um of lágan blóðsykur ætti ekki að stjórna ökutæki.
ÁfengiGetur valdið lækkun á blóðsykri. Einkenni um lækkaðan blóðsykur líkjast að sumu leyti áhrifum áfengis. Það minnkar líkur á því að einkennin þekkist og að rétt sé brugðist við þeim. Sjúklingar sem nota lyfið ættu því að forðast áfengi.
ÍþróttirLeyft við æfingar og í keppni.
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem finna má á heimsíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.