Metoprolol Alvogen
Lyfseðilsskylt
Metoprolol Alvogen tilheyrir flokki lyfja sem kallast beta-blokkarar. Lyf í honum hindra áhrif boðefnanna adrenalíns og noradrenalíns á ýmis líffæri, t.d. hjarta og æðar. Beta-blokkarar skiptast í undirflokka eftir eiginleikum sínum, hvort þeir hafi sérhæfð áhrif á hjarta eða komist í miðtaugakerfið eða ekki. Virka efnið metóprólól hefur tiltölulega sérhæfð áhrif á hjartavöðva þar sem það dregur úr samdráttarkrafti hjartans og hjartsláttartíðni. Vegna sérhæfni sinnar hefur það færri aukaverkanir en ósérhæfðir beta-blokkarar, það hefur t.d. lítil áhrif á lungu og astmasjúklingar þola það betur. Metoprolol Alvogen er notað við háþrýstingi, hjartaöng, hjartsláttartruflunum, hjartsláttarónotum, stöðugri hjartabilun og til að fyrirbyggja hjartadrep vegna kransæðastíflu. Metóprólól berst til miðtaugakerfisins og getur komið að gagni sem fyrirbyggjandi lyf við mígreni.

| A-hlið | B-hlið | |
|---|---|---|
| Litur | Hvítur | Hvítur |
| Gerð | Tafla |
|---|---|
| Lögun | Ílöng |
| Deilistrik | Já |
| Lengd | 9,2 mm |
| Breidd | 4,2 mm |
| Grunnlögun | Kúpt |
| Styrkur | 23,75 mg |
Notkun á lyfjum
Aukaverkanir
Aukaverkanir eru tíðari eftir því sem skammtar eru stærri. Almennt finna um 10% þeirra sem taka lyfið fyrir einhverjum aukaverkunum.
- Hand- eða fótkuldiLeitið til læknis
- Höfuðverkur, svimi, þreytaLeitið til læknis
- Kviðverkir, niðurgangur og hægðatregðaLeitið til læknis
- Mæði við áreynsluLeitið til læknis
- ÓgleðiLeitið til læknis
- Svimi þegar staðið er uppLeitið til læknis
- Hjartsláttartruflanir, hægur hjartslátturLeitið strax til læknis
- BjúgurLeitið til læknis
- GulaLeitið til læknis
- SkapgerðarbreytingarLeitið til læknis
- Útbrot, kláðiLeitið til læknis
- Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettirLeitið strax til læknis
- Verkur fyrir brjósti, mæðiLeitið strax til læknis
Milliverkanir
Sé lyfið tekið með öðrum blóðþrýstingslækkandi lyfjum geta áhrif þeirra magnast. Náttúrulyfið Jóhannesarjurt getur dregið úr virkni lyfsins.
Nánari upplýsingar
Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:
- grunur leiki á um þungun
- lítið blóðflæði sé til útlima (kemur fram sem hand- eða fótkuldi)
- þú sért með astma eða annan lungnasjúkdóm
- þú sért með of- eða vanvirkan skjaldkirtil
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú sért með skerta lifrar- eða nýrnastarfsemi
- þú sért með sykursýki
- þú takir einhver önnur lyf

| A-hlið | B-hlið | |
|---|---|---|
| Litur | Hvítur | Hvítur |
| Gerð | Tafla |
|---|---|
| Lögun | Ílöng |
| Deilistrik | Já |
| Lengd | 9,2 mm |
| Breidd | 4,2 mm |
| Grunnlögun | Kúpt |
| Styrkur | 23,75 mg |








