Metronidazol Baxter Viaflo

Sýkingalyf | Verðflokkur: 0 | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Metrónídazól

Markaðsleyfishafi: Baxter | Skráð: 22. desember, 2021

Metrónídazól er sýkladrepandi lyf. Það verkar á margar tegundir baktería og sníkjudýra sem geta valdið sýkingum í kynfærum, meltingarvegi, loftvegum, munni og beinum. Ólíkt mörgum sýklalyfjum berst metrónídazól í miðtaugakerfið og gagnast því við bakteríusýkingum þar. Það er líka notað útvortis við sýkingum í húð, og í sumum tilfellum til að fyrirbyggja sýkingar vegna aðgerða. Lyfið þolist almennt vel, aukaverkanir þess eru mjög sjaldan það alvarlegar að hætta þurfi meðferð með lyfinu. Metronidazol Baxter Viaflo er notað handa fullorðnum og börnum til að: fyrirbyggja sýkingar eftir skurðaðgerðir, meðhöndla alvarlegar sýkingar í kviðarholi eða kvenlíffærum. Eingöngu má nota Metronidazol Baxter Viaflo undir eftirliti læknis.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Innrennslislyf í æð.

Venjulegar skammtastærðir:
Lyfið er gefið af heilbrigðisstarfsfólki og skammtar eru háðir: aldri, þyngd, ástandi sjúklings og sýkingu.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Misjafnt eftir því hvar sýkingin er, hvaða lyfjaform er notað og hversu næmir sýklarnir eru fyrir lyfinu.

Verkunartími:
6-12 klst.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Á ekki við.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Notaðu lyfið eins lengi og læknir segir fyrir um. Hætti lyfjanotkun of snemma aukast líkur á því að sýkingin nái sér aftur á strik.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Ef of stór skammtur af lyfinu hefur verið notaður, eða ef barn hefur í ógáti tekið inn lyfið skal hafa samband við lækni, sjúkrahús eða eitrunarmiðstöð (sími 543 2222). Einkenni ofskömmtunar geta verið ógleði, uppköst, léleg samhæfing eða væg vanáttun.

Langtímanotkun:
Metrónídazól er sjaldnast notað lengur en í 10 daga í senn.


Aukaverkanir

Aukaverkanir lyfsins eru oftast tíðari eftir því sem skammtar eru stærri.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Brisbólga: Hiti og kviðverkir        
Krampar eða flog        
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar      
Óvæntar sýkingar, sár í munni, mar, blæðing úr tannholdi eða mikil þreyta        

Milliverkanir

Forðast á áfenga drykki og lyf sem innihalda alkóhól.

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun
  • þú sért með blóðsjúkdóm
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú sért með taugasjúkdóm

Meðganga:
Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum. Forðast skal notkun þess á meðgöngu.

Brjóstagjöf:
Lyfið berst í brjóstamjólk en í venjulegum skömmtum er ólíklegt að það hafi áhrif á barnið. Forðast skal notkun þess með barn á brjósti.

Börn:
Minni skammtar eru notaðir hjá yngri en 12 ára og eru þeir reiknaðir út frá líkamsþyngd.

Eldra fólk:
Læknir gæti breytt skammtastærðum eftir þörfum.

Akstur:
Lyfið gæti haft áhrif á aksturshæfni, hver og einn þarf að meta getu sína til aksturs.

Áfengi:
Ekki neyta áfengis meðan lyfið er tekið. Metrónídazól hindrar niðurbrot efna sem myndast úr áfengi og það getur valdið miklum óþægindum. Láttu a.m.k. 3 daga líða frá því að meðferð lýkur og þangað til áfengis er neytt.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.

Annað:
Meðferð við virkum sýkingum stendur yfirleitt í 7 til 10 daga.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.