Mildison Lipid

Barksterar húðlyf | Verðflokkur: G/0 | Lyfseðilsskylt. Heimilt er að selja takmarkað magn af lyfinu í lausasölu

Virkt innihaldsefni: Hýdrókortisón_

Markaðsleyfishafi: Karo Pharma | Skráð: 1. janúar, 1990

Mildison Lipid inniheldur hýdrókortisón en það er sterahormón sem myndast í nýrnahettunum. Lyfið er notað staðbundið til þess að draga úr bólgum, kláða og ofnæmiseinkennum, en það bælir myndun efna sem framkalla bólgur og virkja ónæmiskerfið. Sterar sem eru notaðir í húðlyf skiptast gróflega í 4 flokka eftir styrkleika. Hýdrókortisón er vægur steri og tilheyrir flokki 1, vægasta flokknum. Lyfið er notað við exemi og öðrum húðsjúkdómum þar sem sterar eiga við.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Útvortis krem.

Venjulegar skammtastærðir:
Borið á í þunnu lagi 1-3svar á dag.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
1-7 dagar, misjafnt eftir ástandi sjúklings.

Verkunartími:
Misjafn eftir ástandi sjúklings.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Notaðu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að nota lyfið eins og venjulega. Ekki nota tvo skammta í einu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Hætta má notkun lyfsins hvenær sem hentar hafi það verið notað við tilfallandi einkennum í stuttan tíma. Í öðrum tilfellum skaltu hafa samband við lækni áður en notkun lyfsins er hætt.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef notaðir eru stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.

Langtímanotkun:
Meiri hætta er á að aukaverkanir lyfsins komi fram. Hýdrókortisón getur valdið húðþynningu þegar það er notað útvortis til langs tíma.


Aukaverkanir

Eins og almennt gildir um lausasölulyf eru aukaverkanir sjaldgæfar þegar farið er eftir reglum um notkun og venjulegar skammtastærðir eru teknar.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Húðþynning          
Útbrot og mikill kláði          

Milliverkanir

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:
Engin þekkt áhætta er af notkun lyfsins á meðgöngu. Ekki nota nein lyf á fyrstu 3 mánuðum meðgöngu nema í samráði við lækni.

Brjóstagjöf:
Lyfið berst í brjóstamjólk en í venjulegum skömmtum er ólíklegt að það hafi áhrif á barnið.

Börn:
Venjulegar skammtastærðir.

Eldra fólk:
Venjulegar skammtastærðir.

Akstur:
Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.

Áfengi:
Áfengi hefur ekki áhrif á verkun lyfsins.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.