Modafinil Bluefish
Lyfseðilsskylt
Modafinil Bluefish inniheldur virka efnið módafíníl. Lyfið er notað við svefnflogum með eða án máttleysiskasta. Svefnflog er það þegar fólk á í erfiðleikum með að halda sér vakandi að degi til án þekktrar undirliggjandi orsakar og sofnar jafnvel hvenær sem er eða hvar sem er. Virkni módafíníls virðist að hluta tengd sértækri örvun á adrenvirkum taugaboðum í heila. Með því að örva þessi taugaboð í heila eykur það eftirtekt og auðveldar mönnum að halda sér vakandi að degi til. Þar sem módafíníl hefur mjög sértæka örvun á adrenvirk taugaboð hefur það ekki áhrif á hjarta og æðakerfi og fólk virðist ekki verða vart við vanabindingu af lyfinu.

| A-hlið | B-hlið | |
|---|---|---|
| Litur | Hvítur | Hvítur |
| Gerð | Tafla |
|---|---|
| Lögun | Hringlaga |
| Deilistrik | Nei |
| Þvermál | 9 mm |
| Grunnlögun | Kúpt |
| Styrkur | 100 mg |
Notkun á lyfjum
Aukaverkanir
Sjaldan þarf að hætta meðferð vegna algengra aukaverkana því þær hverfa oftast smám saman við sömu eða minni skammta.
- Æsingur og skyndileg árásargirniLeitið til læknis
- LystarleysiLeitið til læknis
- Tímabundinn óróiLeitið til læknis
- SvefnleysiLeitið strax til læknis
- Hreyfitregða í vanga og andlitiLeitið strax til læknis
- Kláði í húðLeitið strax til læknis
Milliverkanir
Getur haft áhrif getnaðarvarnartöflur sem innhalda lítið magn estrógen/gestagens. Nota þarf aðrar getnaðarvarnir meðan lyfið er tekið eða breyta yfir í aðra tegund af pillunni sem innheldur meira magn af hormónum.
Nánari upplýsingar
Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með of háan blóðþrýsting
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú takir einhver önnur lyf
- þú sért með mikinn kvíða

| A-hlið | B-hlið | |
|---|---|---|
| Litur | Hvítur | Hvítur |
| Gerð | Tafla |
|---|---|
| Lögun | Hringlaga |
| Deilistrik | Nei |
| Þvermál | 9 mm |
| Grunnlögun | Kúpt |
| Styrkur | 100 mg |








