Myfenax (Heilsa)

Lyfjabokin 05 (1)
Leitaðu í Lyfjabókinni Hér finnur þú öll skráð lyf á Íslandi sem seld eru í apótekum
Lyf til ónæmisbælingar

Lyfseðilsskylt

Verðflokkur G: Lyfið er niðurgreitt og fellur inn í greiðsluþrepakerfiðVirkt innihaldsefni: MýcófenólsýraSkráð 17. mars 2008

Myfenax er kröftugt ónæmisbælandi lyf og er notað til að hindra það að ígræddu líffæri verði hafnað. Það sem takmarkar helst árangur líffæraflutninga er það vandamál að ónæmiskerfi líkamans snýst gegn nýja líffærinu og skemmir það. Til þess að koma í veg fyrir að svo fari þarf að gefa ónæmisbælandi lyf ævilangt eftir líffæraígræðslu. Myfenax er notað samfara ciklósporíni og barksterum.

Notkun á lyfjum

LyfjaformHylki til inntöku.
Venjulegar skammtastærðir1-1,5 g í senn 2svar á dag. Hylkin gleypist heil með vatnsglasi. Má hvorki brjóta þau né mylja.
Hversu langur tími uns verkun kemur framHámarksblóðþéttni næst eftir 1-2 klst. frá inntöku. Áhrif á sjúkdóminn koma fram eftir mun lengri tíma.
VerkunartímiVerkunartími er mjög mismunandi eftir einstaklingum.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekiðEkki má drekka greipaldinsafa með mýcófenólsýru (hann eykur styrk lyfsins í blóði).
GeymslaGeymist í lokuðum umbúðum í þynnum og varið ljósi við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymistTaktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.
Hvernig á að hætta töku lyfsinsEkki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.
Ef tekinn er of stór skammturHafðu samband við lækni í öllum tilfellum.
LangtímanotkunFylgjast þarf reglulega með árangri meðferðar, blóðþéttni lyfsins, fjölda blóðkorna og nýrnastarfsemi.

Aukaverkanir

Alvarlegasta aukaverkun lyfsins er skerðing á nýrnastarfsemi, en hún gengur oftast til baka þegar skammtar eru minnkaðir. Almennt eru aukaverkanir lyfsins háðar skammtastærðum og afturrækar þegar skammtar eru minnkaðir. Myfenax minnkar mótstöðu gegn sýkingum. Auk þess getur lyfið haft ýmis áhrif á efnabúskap líkamans. Meðfylgjandi listi er ekki tæmandi.

Algengar aukaverkanir (>1%):
  • Aukinn hósti
    Leitið til læknis
  • Bólur í húð, hárlos
    Leitið til læknis
  • Breyting á bragðskyni
    Leitið til læknis
  • Gula
    Leitið til læknis
  • Lystarleysi, þyngdartap
    Leitið til læknis
  • Meltingartruflanir, hægðatregða og niðurgangur
    Leitið til læknis
  • Náladofi
    Leitið til læknis
  • Ógleði, uppköst, kviðverkir
    Leitið til læknis
  • Sár í munni
    Leitið til læknis
  • Útbrot
    Leitið til læknis
  • Vöðvaverkir, liðverkir
    Leitið til læknis
  • Þunglyndi, skapgerðarbreytingar, svefnleysi
    Leitið til læknis
  • Breyting á blóðþrýstingi, bjúgur
    Leitið strax til læknis
  • Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettir
    Leitið strax til læknis
  • Mæði
    Leitið strax til læknis
  • Svartar eða blóðugar hægðir, blóð í þvagi
    Leitið strax til læknis
  • Sýkingar
    Leitið strax til læknis

Milliverkanir

Vegna ónæmisbælandi áhrifa lyfsins verður að gæta varúðar við bólusetningu með lifandi bóluefni. Nota má sýrubindandi lyf sem innihalda ál og magnesíum annað slagið en ekki daglega.

Nánari upplýsingar

Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:

  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú sért með skerta lifrar- eða nýrnastarfsemi
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú sért með meltingarfærasjúkdóm
  • þú hafir verið bólusettur nýlega eða þurfir á bólusetningu að halda
MeðgangaLyfið eykur líkur á fósturskaða sé það notað á meðgöngu. Konur á barneignaraldri ættu að nota örugga getnaðarvörn á meðan lyfið er tekið og í 6 vikur eftir að töku þess er hætt.
BrjóstagjöfEkki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk. Hætta skal brjóstagjöf á meðan lyfið er tekið.
BörnLyfið er ekki ætlað börnum yngri en 2ja ára. Skammtar eru háðir stærð barnsins.
Eldra fólkVenjulegar skammtastærðir.
AksturLyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.
ÁfengiEkki neyta áfengis meðan lyfið er tekið.
ÍþróttirLeyft við æfingar og í keppni.
AnnaðTakmarka skal sólarljós og útfjólubláa geisla á húðina.
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem finna má á heimsíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.