Nasonex
Neflyf
Lyfseðilsskylt
Verðflokkur G: Lyfið er niðurgreitt og fellur inn í greiðsluþrepakerfiðVirkt innihaldsefni: MómetasónSkráð 1. maí 1998
Mómetasón er notað við bólgusjúkdómum og ofnæmiseinkennum. Það bælir myndun efna sem framkalla bólgur og virkja ónæmiskerfið. Lyfið er steri sem hefur sömu áhrif og sterahormón sem myndast í nýrnahettunum. Nasonex er notað staðbundið við ofnæmisnefkvefi og stöðugu nefkvefi sem og við skútabólgu en þá er það notað ásamt sýklalyfi.
Notkun á lyfjum
LyfjaformNefúði.
Venjulegar skammtastærðirFullorðnir og börn eldri en 12 ára. 1-2 skammtar (50-100 míkrógrömm) í hvora nös einu sinni á dag. Börn 6-11 ára: 1 skammtur (50 míkrógrömm) í hvora nös einu sinni á dag.
Hversu langur tími uns verkun kemur framInnan við 12 klst.
VerkunartímiEkki að fullu þekktur.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekiðEngin.
GeymslaGeymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymistNotaðu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að nota lyfið eins og venjulega. Ekki nota tvo skammta í einu.
Hvernig á að hætta töku lyfsinsLyfið er venjulega aðeins notað þangað til einkenni hafa minnkað eða eru horfin. Farðu eftir fyrirmælum læknis.
Ef tekinn er of stór skammturStakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef notaðir eru stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.
LangtímanotkunMeiri hætta er á því að aukaverkanir lyfsins komi fram.
Aukaverkanir
Aukaverkanir eru sjaldgæfar, sérstaklega þegar lyfið er notað í stuttan tíma.
Algengar aukaverkanir (>1%):
- HöfuðverkurLeitið til læknis
- Særindi og sviði í nefi og hálsiLeitið til læknis
Sjaldgæfar aukaverkanir (<1%):
- Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikarLeitið strax til læknis
Nánari upplýsingar
Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú takir einhver önnur lyf
MeðgangaTakmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum.
BrjóstagjöfEkki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk.
BörnLyfið er ekki ætlað börnum yngri en 6 ára.
Eldra fólkVenjulegar skammtastærðir.
AksturLyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.
ÁfengiÍ litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.
ÍþróttirLeyft við æfingar og í keppni.
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem finna má á heimsíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.








