Natriumbikarbonat Viatris

Lyfjabokin 05 (1)
Leitaðu í Lyfjabókinni Hér finnur þú öll skráð lyf á Íslandi sem seld eru í apótekum
Sýrubindandi lyf

Lausasölulyf

Verðflokkur 0: Lyfið er ekki niðurgreitt og fellur ekki inn í greiðsluþrepakerfiðVirkt innihaldsefni: Natríumhýdrógenkarbónat

Lyfið inniheldur natríumhýdrógenkarbónat sem flokkast sem sýrubindandi lyf. Í minni skömmtum er natríumhýdrógenkarbónat notað við of háum magasýrum í samsetningu með öðrum lyfjum. Natriumbikarbonat er notað við of mikilli sýru í líkamanum og einnig til að gera þvag basískt, t.d. vegna nýrnasjúkdóma. Til að meta áhrif lyfsins er mælt með því að fylgst sé með sýrustigi þvags með þvagstrimlum.

Tafla 1 g Tafla

Notkun á lyfjum

LyfjaformTöflur til inntöku.
Venjulegar skammtastærðirSkömmtun er einstaklingsbundin og ákveðin af lækni hverju sinni.
Hversu langur tími uns verkun kemur framMisjafnt eftir ástandi sjúklings.
VerkunartímiMisjafn eftir ástandi sjúklings.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekiðEngin.
GeymslaGeymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymistTaktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.
Hvernig á að hætta töku lyfsinsTaktu lyfið eins lengi og læknir segir til um.
Ef tekinn er of stór skammturStakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skaltu hafa samband við lækni.
LangtímanotkunBlóðlýting getur komið fram við langvarandi notkun.

Aukaverkanir

Eins og almennt gildir um lausasölulyf eru aukaverkanir sjaldgæfar þegar farið er eftir reglum um notkun og venjulegar skammtastærðir eru notaðar.

Nánari upplýsingar

Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:

  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú sért með skerta hjarta- eða nýrnastarfsemi
MeðgangaEngin þekkt áhætta er af notkun lyfsins á meðgöngu. Ekki taka nein lyf á fyrstu 3 mánuðum meðgöngu nema í samráði við lækni.
BrjóstagjöfEkki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk.
BörnLyfið er ekki ætlað börnum.
Eldra fólkVenjulegar skammtastærðir.
AksturLyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.
ÁfengiÍ litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.
ÍþróttirLeyft við æfingar og í keppni.
AnnaðLyfið getur valdið vökvasöfnun hjá sjúklingum með skerta hjarta- eða nýrnastarfsemi.
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem finna má á heimsíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.