Nezeril (Heilsa)

Neflyf | Verðflokkur: 0 | Heimilt er að selja takmarkað magn af lyfinu í lausasölu

Virkt innihaldsefni: Oxýmetazólín

Markaðsleyfishafi: GlaxoSmithKline | Skráð: 10. október, 2022

Nezeril (Heilsa) er við nefstíflum og miklu nefrennsli. Oxýmetazólín, virka efni lyfsins, veldur því að æðar í nefslímhúðinni dragast saman. Við þetta minnka bólgur í nefslímhúðinni og dregið er úr slímmyndun. Lyfið er einnig notað sem stuðningsmeðferð við miðeyrnabólgu ef hún stafar af stíflu í kokhlust og handa nýfæddum börnum sem eiga erfitt með að sjúga vegna nefstíflu. Ef oxýmetazólín er notað lengur en 10 daga í senn eykst hætta á því að langvarandi bólga í nefslímhúð komi fram þegar notkun lyfsins er hætt.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Nefúði, lausn (0,5 mg/ml).

Venjulegar skammtastærðir:
Lyfið er notað 2-3svar á dag. Skammtastærðir fara eftir aldri og því lyfjaformi sem er notað. Lestu vandlega leiðbeiningar um skömmtun sem fylgja með lyfinu.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Nokkrar mínútur.

Verkunartími:
6-8 klst.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Lyfið er aðeins notað eftir þörfum.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Hætta má notkun lyfsins þegar einkenni eru ekki lengur til staðar.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Stórir skammtar geta valdið sviða og óþægindum í nefi. Mjög stórir skammtar geta valdið hröðum hjartslætti, háum blóðþrýstingi og eirðarleysi. Hafðu samband við lækni ef þessi einkenni koma fram.

Langtímanotkun:
Lyfið má ekki nota lengur en 10 daga í senn. Notkun lengur en 10 daga í senn getur leitt til bólgu í nefslímhúð og því valdið vítahringi.


Aukaverkanir

Eins og almennt gildir um lausasölulyf eru aukaverkanir sjaldgæfar þegar farið er eftir reglum um notkun og venjulegar skammtastærðir eru notaðar.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Sviði eða erting í nefi          

Milliverkanir

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með gláku
  • þú sért með hjartasjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú sért með ofvirkan skjaldkirtil

Meðganga:
Takmarkaðar upplýsingar liggja fyrir um notkun lyfsins á meðgöngu. Til að gæta varúðar má aðeins nota Nezeril á meðgöngu samkvæmt ráðleggingum læknis.

Brjóstagjöf:
Ekki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk.

Börn:
Minni skammtar eru notaðir. Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 2ja ára.

Eldra fólk:
Venjulegar skammtastærðir.

Akstur:
Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.

Áfengi:
Áfengi hefur ekki áhrif á verkun lyfsins.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.

Annað:
Ekki nota lyfið lengur en 10 daga í senn.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.