Norvasc

Kalsíumgangalokar | Verðflokkur: G | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Amlódipín

Markaðsleyfishafi: Pfizer | Skráð: 1. janúar, 1992

Norvasc tilheyrir flokki lyfja sem kallast kalsíumblokkarar. Lyf í þessum flokki hindra flæði kalsíums inn í vöðvafrumur, en kalsíum er nauðsynlegt fyrir samdrátt vöðvafrumna. Vöðvafrumur í líkamanum innihalda mismikið af kalsíum og eru því ekki allar jafn mikið háðar flæði kalsíums inn í frumuna. Áhrif kalsíumblokkara eru því að mestu bundin við frumur með lítið kalsíum, eða vöðvafrumur í æðaveggjum og hjartavöðva. Kalsíumblokkarar eru síðan flokkaðir innbyrðis eftir því hvort áhrif þeirra beinist að æðum eða hjarta. Virka efnið amlódipín hefur fyrst og fremst æðavíkkandi áhrif. Það víkkar bæði kransæðar og slagæðar, minnkar með því blóðþrýsting og eykur blóðflæði til hjartavöðva. Norvasc er notað við háþrýstingi, hjartaöng og æðakrampaöng.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Töflur til inntöku.

Venjulegar skammtastærðir:
Fullorðnir: 5-10 mg á dag. Börn 6-17 ára: 2,5-5 mg á dag. Ekki er hægt að skipta 5 mg töflu í tvo jafna skammta. Töflurnar takist með vatnsglasi.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Áhrif á háþrýsting: 1-4 dagar.

Verkunartími:
1-2 dagar eftir stöðuga töku lyfsins.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Greipaldinsafi getur haft áhrif á útskilnað amlódipíns úr líkama.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Einkenni sjúkdóms geta versnað þegar töku lyfsins er hætt. Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru stórir skammtar eða ef vart verður við óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.

Langtímanotkun:
Án vandkvæða.


Aukaverkanir

Algengasta aukaverkun lyfsins er ökklabjúgur. Þessi aukaverkun er skammtaháð og er tíðni hennar um 3% hjá þeim sem taka 5 mg á dag, en um 11% hjá þeim sem taka 10 mg á dag.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Bjúgur í útlimum          
Gula          
Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettir        
Hjartsláttarónot        
Höfuðverkur, svimi, þreyta          
Ógleði, kviðverkir          
Roði í andliti          
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar      
Verkur fyrir brjósti, mæði        

Milliverkanir

Náttúrulyfið Jóhannesarjurt getur dregið úr virkni lyfsins.

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:
Nokkur hætta er á því að lyfið hafi áhrif á fóstur.

Brjóstagjöf:
Ekki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk.

Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 6 ára.

Eldra fólk:
Venjulegar skammtastærðir.

Akstur:
Lyfið getur valdið svima og þar með haft áhrif á aksturshæfni. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.

Áfengi:
Áfengi getur haft óæskileg áhrif á blóðþrýsting og hjartsláttarhraða. Æskilegt er að halda áfengisneyslu í lágmarki meðan lyfið er tekið.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.