Nurofen Apelsin (Heilsa)

Lyfjabokin 05 (1)
Leitaðu í Lyfjabókinni Hér finnur þú öll skráð lyf á Íslandi sem seld eru í apótekum
Bólgueyðandi lyf og gigtarlyf

Lausasölulyf

Verðflokkur 0: Lyfið er ekki niðurgreitt og fellur ekki inn í greiðsluþrepakerfiðVirkt innihaldsefni: ÍbúprófenSkráð 14. nóvember 2011

Nurofen Junior Appelsín er bólgueyðandi lyf með verkjastillandi og hitalækkandi verkun. Virka efnið íbúprófen dregur úr myndun prostaglandínefna í líkamanum, en þau valda meðal annars bólgumyndun. Nurofen Appelsin er ætlað til skammtímameðferðar við vægum til meðalmiklum verkjum og við hita. er notað við liðagigt, slitgigt, tíðaverkjum, tannpínu, höfuðverk og sem verkjalyf eftir minni háttar aðgerðir. Lyfið er einnig notað til að lækka hita hjá börnum.

Notkun á lyfjum

LyfjaformMixtúra til inntöku.
Venjulegar skammtastærðirLyfið er ætlað börnum. 7-10 mg á hvert kg líkamsþyngdar í senn allt að 3svar á dag, með 6-8 klst millibili. 1 ml inniheldur 40 mg af íbúprófeni.
Hversu langur tími uns verkun kemur framÁhrif lyfsins koma fram á nokkrum mínútum.
VerkunartímiMisjafn eftir ástandi sjúklings.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekiðEngin.
GeymslaGeymist í lokuðum umbúðum við eða undir stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymistTaktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.
Hvernig á að hætta töku lyfsinsLyfið er venjulega tekið við tilfallandi verkjum. Hætta má töku þess þegar ekki gerist lengur þörf fyrir það.
Ef tekinn er of stór skammturStakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skaltu hafa samband við lækni.
LangtímanotkunLyfið er ætlað til skammtímameðferðar.

Aukaverkanir

Eftirtaldar aukaverkanir eiga við um notkun í skamman tíma. Langtíma notkun eykur líkur á aukaverkunum.

Sjaldgæfar aukaverkanir (<1%):
  • Gula
    Leitið til læknis
  • Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettir
    Leitið strax til læknis
  • Svartar eða blóðugar hægðir, blóð í þvagi
    Leitið strax til læknis
  • Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar
    Leitið strax til læknis

Nánari upplýsingar

Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:

  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með astma
  • þú sért með bólgusjúkdóm í þörmum
  • þú sért með hjarta- eða æðasjúkdóm
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með maga- eða skeifugarnarsár
  • þú sért með of háan blóðþrýsting
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú sért með rauða úlfa (lupus)
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú sért með hlaupabólu
  • þú sért með ofnæmi fyrir öðrum bólgueyðandi lyfjum
MeðgangaNokkur hætta er á því að lyfið hafi áhrif á fóstur. Ekki má taka lyfið á síðustu mánuðum meðgöngu.
BrjóstagjöfLyfið berst í brjóstamjólk en í venjulegum skömmtum er ólíklegt að það hafi áhrif á barnið.
BörnLyfið er ekki ætlað börnum yngri en 6 mánaða eða undir 7 kg á þyngd.
Eldra fólkAldraðir eru viðkvæmari fyrir aukaverkunum lyfsins.
AksturLyfið hefur almennt ekki áhrif á aksturshæfni.
ÁfengiGetur aukið ertandi áhrif lyfsins á magaslímhúð.
ÍþróttirLeyft við æfingar og í keppni.
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem finna má á heimsíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.