Nurofen Junior Appelsín

Bólgueyðandi lyf og gigtarlyf | Verðflokkur: 0 | Lausasölulyf

Virkt innihaldsefni: Íbúprófen

Markaðsleyfishafi: Reckitt Benckiser Healthcare | Skráð: 1. apríl, 2013

Nurofen Junior Appelsín er bólgueyðandi lyf með verkjastillandi og hitalækkandi verkun. Virka efnið íbúprófen dregur úr myndun prostaglandínefna í líkamanum, en þau valda meðal annars bólgumyndun. Nurofen Appelsin er ætlað til skammtímameðferðar við vægum til meðalmiklum verkjum og við hita. er notað við liðagigt, slitgigt, tíðaverkjum, tannpínu, höfuðverk og sem verkjalyf eftir minni háttar aðgerðir. Lyfið er einnig notað til að lækka hita hjá börnum.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Mixtúra til inntöku.

Venjulegar skammtastærðir:
Lyfið er ætlað börnum. 7-10 mg á hvert kg líkamsþyngdar í senn allt að 3svar á dag, með 6-8 klst millibili. 1 ml inniheldur 40 mg af íbúprófeni.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Áhrif lyfsins koma fram á nokkrum mínútum.

Verkunartími:
Misjafn eftir ástandi sjúklings.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við eða undir stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Lyfið er venjulega tekið við tilfallandi verkjum. Hætta má töku þess þegar ekki gerist lengur þörf fyrir það.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skaltu hafa samband við lækni.

Langtímanotkun:
Lyfið er ætlað til skammtímameðferðar.


Aukaverkanir

Eftirtaldar aukaverkanir eiga við um notkun í skamman tíma. Langtíma notkun eykur líkur á aukaverkunum.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Gula          
Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettir        
Svartar eða blóðugar hægðir, blóð í þvagi        
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar      

Milliverkanir

Náttúrulyfið ginkgo getur aukið blæðingahættu.

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með astma
  • þú sért með bólgusjúkdóm í þörmum
  • þú sért með hjarta- eða æðasjúkdóm
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með maga- eða skeifugarnarsár
  • þú sért með of háan blóðþrýsting
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú sért með rauða úlfa (lupus)
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú sért með hlaupabólu
  • þú sért með ofnæmi fyrir öðrum bólgueyðandi lyfjum

Meðganga:
Nokkur hætta er á því að lyfið hafi áhrif á fóstur. Ekki má taka lyfið á síðustu mánuðum meðgöngu.

Brjóstagjöf:
Lyfið berst í brjóstamjólk en í venjulegum skömmtum er ólíklegt að það hafi áhrif á barnið.

Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 6 mánaða eða undir 7 kg á þyngd.

Eldra fólk:
Aldraðir eru viðkvæmari fyrir aukaverkunum lyfsins.

Akstur:
Lyfið hefur almennt ekki áhrif á aksturshæfni.

Áfengi:
Getur aukið ertandi áhrif lyfsins á magaslímhúð.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.