Omnitrope

Hormónalyf, önnur en kynhormónar og insúlín | Verðflokkur: 0 | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Somatropin

Markaðsleyfishafi: Sandoz | Skráð: 17. október, 2007

Omnitrope er hormónalyf sem inniheldur virka efnið sómatrópín sem er vaxtarhormón. Sómatrópín hefur eins byggingu og náttúrulegt vaxtarhormón líkamans sem er nauðsynlegt fyrir vöxt beina og vöðva. Omnitrope er ætlað til meðferðar á vaxtartruflunum hjá börnum og til að meðhöndla fullorðna og börn sem hafa staðfestan skort á vaxtarhormóni.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Stungulyf

Venjulegar skammtastærðir:
Skammtar eru einstaklingsbundnir og fara eftir stærð, sjúkdómnum sem verið er að meðhöndla og hversu vel vaxtarhormón virka hjá þér. Ávísuðum skammti er sprautað undir húð einu sinni á dag, gott að gera það fyrir svefninn.

Geymsla:
Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Geymið lyfið í kæli (2°C-8°C) varið ljósi, lyfið má ekki frjósa.

Ef skammtur gleymist:
Ef einn skammtur gleymist á ekki að tvöfalda næsta skammt til að bæta upp fyrir þann sem gleymdist. Taktu næsta skammt á venjulegum tíma. Látið lækni vita af þeim skömmtum sem gleymast.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Í samráði við lækni.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Hafðu samband við lækni, sjúkrahús eða eitrunarmiðstöð (sími 543 2222).

Langtímanotkun:
Meðferðalengd er einstaklingsbundin.


Aukaverkanir

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Bjúgur, vökvasöfnun          
Brjóstastækkun hjá karlmönnum          
Hörundsroði, útbrot, kláði eða viðbrögð á stungustað          
Náladofi          
Vöðvaverkir, liðverkir          

Milliverkanir

Látið lækni vita af öllum lyfjum en séstaklega ef þú tekur sykursýkislyf, skjaldkirtilshormón, flogaveikilyf, kynhormón, barkstera eða ciklósporín. Læknir gæti þurft að aðlaga skammta þessara lyfja eða skammt omnirtope.

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • hvort þú sért með sykursýki
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú sért með skjaldkirtilssjúkdóm
  • þú sért með krabbamein

Meðganga:
Lyfið má ekki nota á meðgöngu.

Brjóstagjöf:
Það hafa ekki verið gerðar miklar rannsóknir á notkun lyfsins samhliða brjóstagjöf. Gæta skal varúðar og ræða við lækni.

Börn:
Lyfið er einnig ætlað börnum og eru skammtar einstaklingsbundnir.

Eldra fólk:
Skammtaaðlögun gæti verið nauðsynleg.

Akstur:
Lyfið hefur ekki áhrif á hæfni til aksturs.

Annað:
Einungis sérfræðilæknar í efnaskipta- og innkirlalækningum mega ávísa Omnitrope.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.